Miðvikudagur 10.06.2009 - 14:00 - Ummæli ()

Ný könnun: Þrír af hverjum fjórum vilja þjóðaratkvæði um aðildarsókn að Evrópusambandinu

esb.jpgÞrír af hverjum fjórum, 76,3% landsmanna, vilja þjóðaratkvæði um aðildarumsókn að Evrópusambandinu (ESB).

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Heimssýn, samtökum sjálfstæðissinna, sem fengu Capacent Gallup til að gera skoðanakönnun um málið. Könnunin var gerð dagana 28. maí til 4. júní. Úrtakið var 1264 og svarhlutfall 62,3%.

Samkvæmt könnuninni leggja aðeins tæp 18% litla áherslu á þjóðaratkvæði um inngöngu.

Spurningin var svohljóðandi: Hversu miklu eða litlu máli finnst þér skipta að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að sækja um aðild að Evrópusambandinu?

Alls svöruðu 76,3% að mjög miklu eða frekar miklu máli skipti að spyrja þjóðina álits, þar af sögðu rúm 60% að það skipti mjög miklu máli. Ein 5,8% svöruðu hvorki né en 17, 8% taldi það skipta frekar litlu eða mjög litlu máli að fara í þjóðaratkvæði um hvort Ísland ætti að sækja um aðild.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is