Mannekla hamlar rannsókn – Björn Bergsson tekur við af Valtý
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, telur að fjölga þurfi starfsmönnum embættisins um helming „að minnsta kosti“. Þetta segir hann í Fréttablaðinu í dag.
Vegna fjölskyldutengsla Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara undirbýr dómsmálaráðherra lagabreytingu til að setja sérstakan ríkissaksóknara, sem annast mál sem frá embætti Ólafs koma. Björn Bergsson hæstaréttardómari mun gegna stöðunni.
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, sagði í Kastljósviðtali í gærkvöldi að rannsókn á efnahagshruninu muni litlu skila nema embættið verði stóreflt. Hún vill að ráðnir verði þrír saksóknarar, einn fyrir hvern banka, einnig endurskoðendur og fleiri erlendir sérfræðingar. Hún vill jafnframt að ríkissaksóknari víki en hann er faðir Sigurðar Valtýssonar, forstjóra Exista.
Ólafur Þór tekur undir með Evu Joly hvað varðar styrkingu embættisins. „Að minnsta kosti“, segir hann þegar Fréttablaðið spyr hvort nauðsynlegt sé að fjölga starfsmönnum hans úr tólf í 24. Upphaflega voru hugmyndir Evu Joly um að starfslið Ólafs væri 25 til 30 manns. „Betur má ef duga skal og mat hennar er byggt á upplýsingum frá okkur um væntanlegan málafjölda og eðli mála. Nú eru komin til embættisins á þriðja tug mála og við vitum að fleiri eru á leiðinni.“
Ólafur segir það lagalegt atriði hvort þrír saksóknarar verði ráðnir, eftir hugmyndum Evu. Velta megi fyrir sér hvort það verði einn sérstakur saksóknari og til hans svari þrír saksóknarar, einn fyrir hvern banka. „Slíkt væri ugglaust hægt að útfæra. Öll styrking embættisins myndi flýta því verki sem fram undan er,“ segir Ólafur.
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra greindi ríkisstjórn frá því á þriðjudag að Eva Joly geri kröfu um þrjá saksóknara. Eins að hún væri að undirbúa lagabreytingar í þá átt en að það yrði að gerast innan þess fjárlagaramma sem embættinu hefur verið búinn. „Ég tel mig ekki vera í aðstöðu til að fara fram á frekara fjármagn, í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu, en myndi fagna því ef frekara fjármagn finnst.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is