Laugardagur 13.06.2009 - 18:32 - Ummæli ()

Sigurjón Árnason fékk 40 milljóna kúlulán hjá sjálfum sér langt undir markaðsvöxtum

sigurjonarna.jpgSigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri gamla Landsbankans,  fékk 40 milljóna króna lán hjá Nýja Landsbankanum 20. nóvember síðastliðinn á 3,5% vöxtum, ef marka má skjal sem gengið hefur einsog eldur í sinu um netheima í dag og Eyjan hefur undir höndum. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður, segir að lánið hafi ekki verið tekið hjá bankanum heldur í lífeyrissjóði í eigu Sigurjóns í vörslu Landsbankans. Röngu skjali hafi verið þinglýst upphaflega en það hafi verið leiðrétt. Því hafi Sigurjón fengið lán hjá sjálfum sér, eða öllu heldur hjá lífeyrissjóði í hans eigu.

Ekki hefur náðst í forsvarsmenn Nýja Landsbankans til að fá þetta staðfest. Þá hefur Sigurjón ekki svarað símanum í dag.

Í skjalinu sem dreift hefur verið á netinu kemur fram að afborgun sé ein, 20. nóvember 2009, en vextir reiknist frá 20. nóvember 2028. Sigurður segir þetta einnig hafa verið mistök og hafi þau verið leiðrétt í nýja skjalinu þannig að lánið beri vexti frá 20. nóvember 2008 og skuli greiðast með einni afborgun 20. nóvember 2028.

Langt undir almennum vöxtum

Lánið ber aðeins 3,5% vexti, en í samanburði má nefna að þegar lánið var veitt í nóvember síðastliðnum voru vextir á Íslandi í sögulegu hámarki. Þannig voru stýrivextir Seðlabankans 18% og almennir bankavextir til útlána enn hærri.

Atli Gíslason, lögmaður og þingmaður Vinstri grænna, segir í samtali við dv.is að tímalengd lánsins sé furðu löng sem og langt undir þeim vöxtum sem öðrum stóð til boða á sama tíma.

„Tímalengd lánsins er ótrúlega löng. Þetta ber öll merki um að vera misnotkun á aðstöðu. Þetta er langt undir þeim vöxtum sem öðrum stóð til boða á sama tíma,“ segir Atli.

Ólöglegt og siðlaust?

Vafi leikur á hvort þessi lánveiting er lögleg, enda gengið á svig við almennar leikreglur um lífeyrissjóði. Líkja má þessum gjörningi við þegar einstaklingar hafa tekið út viðbótar lífeyrissparnað, nema hvað í slíkum tilfellum er skylt að greiða 37% skatt af úttektinni. Með því að lána sjálfum sér úr sínum eigin lífeyrissjóði fær Sigurjón því upphæðina greidda út án þess að þurfa að standa skil á slíkri skattgreiðslu. Auk þess leikur vafi á hvort Sigurjón getur átt sinn eigin lífeyrissjóð.

„Það getur enginn einn aðili verið eigandi að íslenskum lífeyrissjóði. Það fellur ekki að íslenskum lögum,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða við dv.is.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is