Sunnudagur 14.06.2009 - 11:33 - Ummæli ()

Tugmilljóna kúlulán til Sigurjóns: Veitt úr 2500 manna séreignasjóði en ekki frá honum sjálfum?

landsbanki.jpgSvo virðist sem tugmilljóna kúlulán til Sigurjóns Þ. Árnasonar, sem greint var frá í gær, hafi verið veitt úr séreignalífeyrissjóði í vörslu Landsbankans en ekki úr hans einkalífeyrissjóði, einsog fréttir fjölmiðla í gær gengu út á.

Veðskuldabréf Sigurjóns á 40 milljóna láni – á aðeins 3,5% vöxtum – er veitt úr kennitölu Fjárvörslureiknings 3 í Nýja Landsbankanum. Kennitala sjóðsins er 570299-9219, en samkvæmt upplýsingum á vef Landsbankans er um að ræða fullgildan séreignasjóð sem stofnaður var árið 1999 og ber lífeyrissjóðsnúmerið 932.

Í janúar síðastliðnum nam stærð sjóðsins 1.335 milljónum króna. Sjóðsfélagar voru 2514, en alls ekki Sigurjón einn og óstuddur.

Sigurjón virðist því hafa fengið lán á einstökum kjörum úr séreignasjóði, sem rúmlega 2500 lífeyrissjóðsþegar hafa greitt til.

Þetta stangast hróplega á við ummæli Sigurðar G. Guðjónssonar, lögmanns Sigurjóns, sem hélt því fram í gær að um væri að ræða einkalífeyrissjóð Sigurjóns og að hann væri því að fá lán hjá sjálfum sér.

Lánið til Sigurjóns ber aðeins 3,5% vexti, sem eru einstök kjör úr lífeyrissjóði miðað við það hávaxtastig sem ríkti í nóvember, en þá voru stýrivextir Seðlabankans 18%.

Alls 70 milljónir?

Einnig hefur Eyjunni borist upplýsingar um að svo virðist sem lán til Sigurjóns hafi numið alls 70 milljónum króna. Hann hafi fengið annað 30 milljóna króna lán frá sama fjárvörslureikningi og að það beri einnig aðeins 3,5% vexti.

Tekið skal fram að Eyjan hefur ekki séð síðara skuldabrféfið, en hefur þó ástæðu til að ætla að þessar heimildir séu traustar.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki náðst í Sigurjón Árnason, Sigurð G. Guðjónsson eða Ásmund Stefánsson, bankastjóra Landsbankans.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is