Mánudagur 15.06.2009 - 13:36 - Ummæli ()

Lögfræðiálit í Kaupþingsmáli: Máttu ekki selja bréfin og því ekki ábyrgir fyrir lánum

kaupthing-2.jpgLögfræðingar Nýja Kaupþings telja að ekki sé hægt að gera lykilstjórnendur í bankanum ábyrga fyrir lánum sem þeir tóku til hlutabréfakaupa í bankanum vegna þess að bankinn hafi meinað þeim að selja bréfin.

Í frétt RÚV í hádeginu er þetta sögð aðalsástæða þess að ekki sé hægt að ógilda ákvörðun fyrrverandi stjórnar Kaupþings um að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna bankans fyrir lánunum, sem námu samtals um 50 milljörðum króna:

Nýja Kaupþing lítur þannig á málið að á lykilstjórnendum í bankanum hafi verið gert að kaupa hlutabréf í honum. Þeir áttu að vera ábyrgir fyrir 10% af láninu sem þeir tóku til hlutabréfakaupanna. Aðalfundur bankans samþykkti fyrir fimm árum að færi verð hlutabréfanna niður fyrir eitthvert ákveðið verð, ætti að selja þau þannig að ekki þyrfti að reyna á persónulegu ábyrgðina. Síðar var hins vegar gefið út það álit bankans að starfsmenn ættu ekki að geta selt bréfin því það myndi gefa í skyn vantraust á bankanum. Samkvæmt heimildum fréttastofu líta lögfræðingar bankans þannig á að ekki sé unnt að gera starfsmennina persónulega ábyrga fyrir skuldunum þar sem þeim hafi verið meinað að selja bréfin.

Haft var eftir Finni Sveinbjörnssyni, bankastjóra Kaupþings, í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að lagaheimildir skorti til að snúa við ákvörðun fyrrverandi stjórnar.

Málið er til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu og sérstökum saksóknara og verður rætt á stjórnarfundi Nýja Kaupþings.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is