Staða heimilanna verri en rætt var um á þingi: Frysting lána var ekki með í upplýsingum Seðlabanka
Staða heimila er verri en skýrsla Seðlabankans frá því í síðustu viku gefur til kynna, þar sem frysting íbúðalána var ekki inn í tölum um greiðslubyrði heimilanna. Skýrsla Seðlabankans var til grundvallar umræðu um stöðu heimilanna á Alþingi í síðustu viku og í trausti hennar hélt forsætisráðherra því fram að staðan væri ekki eins slæm og margir héldu.
,,Það er vissulega þannig að greiðslubyrðin hjá ákveðnum hópum er þyngri en þarna er gefið til kynna,“ sagði Þorvarður Tjörvi Ólafsson hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, við fréttastofu Ríkisútvarpsins.
Erfitt er að spá um skuldsetningu heimilana með tilliti til frystingar lána og annarra aðgerða til að aðstoða heimilin. Alls hafa 1502 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika borist Íbúðalánasjóði frá áramótum til 1. júní en fjöldi slíkra umsókna fyrir allt árið 2008 var 1405. Aukningin frá í fyrra er því nær 700% og þó er árið tæplega hálfnað. Ástæða er til að ætla að aukning verði enn meiri eftir því sem líður á árið.
,,Greiðslubyrðin á íbúðalánunum sem eru í frystingu þurfum við að meta og tengist þeirri vinnu sem nú stendur yfir að reyna að búa til spá um hvernig greiðslubyrði allra þessara lána muni þróast nú á næstunni,“ segir Þorvarður Tjörvi við RÚV.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is