Þriðjudagur 16.06.2009 - 14:31 - Ummæli ()

Homminn Bruno í stuði

brunogayass.jpgAusturríski lífskúnstnerinn og tískuspekúlantinn samkynhneigði, Bruno, gerir nú víðreist við kynningu á bíómynd sinni sem verið er að frumsýna víða í Evrópu þessa dagana.

Myndin hefur fengið titilinn…

Brüno: Delicious Journeys Through America for the Purpose of Making Heterosexual Males Visibly Uncomfortable in the Presence of a Gay Foreigner in a Mesh T-Shirt

…og í samræmi við þetta hélt homminn knái ekkert aftur af sér í gær þegar hann til þess að París fengi sinn skerf af samkynhneigðum töktum.

Bruno á gríðarlegt safn af spennandi fatnaði en við frumsýninguna í París þótti honum mest viðeigandi að mæta í hinum þýskættuðu Lederhosen.

Með honum voru nokkrir vinir hans sem sáu til þess að ljósmyndarar fengju eitthvað til að fara heim með en Bruno þjálfaði módelin sérstaklega til að létta álagið á sjálfum sér.

Það verður spennandi að fá þessa mynd í íslensk kvikmyndahús en síðasta mynd Sasha Baron Cohen um ævintýri Borats í Ameríku er enn í manna minnum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is