Mánudagur 22.06.2009 - 15:02 - Ummæli ()

Icesave kostar ríkið minnst 300 milljarða – líklega mun meira

tryggvi-herbertsson.jpgVextir vegna Icesave samningsins eru ekki forgangskröfur í eignir Landsbankans. Það þýðir að minnst 300 milljarðar vegna Icesave munu falla á íslenska innlánstryggingasjóðinn eða íslenska ríkið, hvað sem fæst fyrir eignirnar. Þetta kom fram á fundi efnahags- og skattanefndar í morgun með skilanefnd Landsbankans.

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir á vefsíðu sinni á Eyjunni að ríkisstjórnin falli væntanlega vegna Icesave málsins.

Hann segist í samtali við mbl.is  sleginn yfir þeim hörmulegu upplýsingum sem komið hafi fram í morgun.

„Ég stóð í þeirri meiningu að vextirnar væru forgangskrafa, en svo er ekki, þannig að við eigum von á þessum glaðningi eftir sjö ár,“ segir Tryggvi Þór. „Samninganefndin virðist hafa gefið sér að minnst 460 milljarðar muni falla á ríkið.“

Hann segir að stjórnarliðar hafi verið blekktir til stuðnings við samkomulagið með pótemkímtjöldum. Hann segist ekki geta talað fyrir alla sjálfstæðismenn en sjálfur muni hann aldrei greiða þessum samningi atkvæði í þessari mynd.

„Ég tala ekki fyrir neinn nema sjálfan mig, en það er alveg á hreinu að það verður stórt nei hjá mér.“

Sjálfstæðismenn lögðu línuna

Hann viðurkennir að sjálfstæðismenn hafi í raun rutt veginn með því að samþykkja að semja um greiðslur vegna Icesave reikninganna án þess að málið fari fyrir dómstóla. Íslendingum hafi verið stillt upp við vegg af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu vegna EES samningsins og aðeins hafi verið samþykkt að fara samningaleiðina. Hann spyr þó hvort það sé fimmhundruð milljarða virði að hafa þá góða. Sjálfur telji hann ekki að svo sé.

Ríkisstjórnin hlýtur að falla

Tryggvi Þór segist vilja, að málið verði leyst með því að gefa ríkisábyrgð á óbreyttan samning en þó með því skilyrði að við þyrftum aldrei að greiða meira en eitt prósent af landsframleiðslu á ári í sjö ár.

Að undanförnu hefur mikið verið rætt um að stuðningur sjálfstæðismanna gæti skipt sköpum í þinginu, því hugsanlega munu einhverjir stjórnarliðar greiða atkvæði gegn samningunum.

„Ef samningurinn verður felldur þá er ljóst að ríkisstjórnin hefur ekki þann stuðning sem hún þarf á þingi. Hún hlýtur þá að fara frá,“ sagði Tryggvi Þór Herbertsson í samtali við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur.

 


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is