Mánudagur 22.06.2009 - 15:04 - Ummæli ()

Tryggvi Þór: Vextir vegna Icesave allt að 300 milljörðum og stjórnin væntanlega fallin

tryggvi-thor.jpgTryggi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Geirs H. Haarde, segir nú liggja ljóst fyrir hvaða forsendur Icesave samninganefndin lagði til grundvallar þegar skrifað var undir lánasamningana við Breta og Hollendinga.

Tryggvi segir á vefsíðu sinni á Eyjunni að gert sé ráð fyrir 75% endurheimt eigna Landsbankans sem þýði að reiknað var með að allt að 160 milljarðar myndu falla á Tryggingasjóð innstæðueigenda, þó auðvitað er hægt að vona það besta – að meira endurheimtist.

„Vextir á Icesave lánunum eru 5,55% og hrósuð menn sér af góðum vaxtakjörum. Heildar vextir sem safnast munu upp á næstu sjö árum gætu því orðið allt að 300 milljarðar. Þessi upphæð er ekki forgangskrafa og kemur í raun þrotabúi Landsbankans ekki við. Hún mun öll falla á Tryggingasjóð innstæðueigenda og á ríkið að 7 árum liðnum.

Það er því ljóst að samninganefndin og fjármálaráðuneytið gerðu ráð fyrir að um 460 milljarðar myndu falla á tryggingasjóðinn. Þessi upphæð verður síðan, ef að líkum lætur, greidd á 7-8 árum. Upphæðin er um 65 milljarðar á ári (auk vaxta) sem er rúmlega það sem kostar að reka allt menntakerfið á Íslandi á ári.

Valdhafarnir hafa reist Potemkin tjöld um Icesave samninginn. En þau tjöld falla nú smátt og smátt og væntanlega stjórnin með!!!!“ segir Tryggvi Þór Herbertsson.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is