Fimmtudagur 25.06.2009 - 09:50 - Ummæli ()

Sátt um stöðugleikasáttmála eftir fund með forsætisráðherra. Stefnt að undirritun í dag

stodugleikasattmali1.jpgKynning á stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar hefur staðið yfir innan raða samtaka opinberra starfsmanna, BSRB, BHM og Kennarasambandsins í morgun.

RÚV sagði frá því í morgunfréttum að allt benti til þess að skrifað verði undir stöðugleikasáttmálann eftir hádegið í dag og að sátt hefði náðst í gærkvöld um innihald hans.

Forsætisráðherra boðaði aðila vinnumarkaðarins til fundar í gærkvöld eftir að snurða hljóp á þráðinn í viðræðunum í gær þar sem fulltrúar opinberra starfsmanna fannst of langt gengið í niðurskurði. Árni Stefán Jónsson, starfandi formaður BSRB, segir að þar hafi komið fram tillaga sem skoðuð verður í dag. „Ég tel afar mikilvægt að opinberir starfsmenn eigi þátt í þessum sáttmála og að við fylgjum þessum sáttmála eftir eins og aðrir.“ Árni vildi ekki upplýsa nánar um hvað tillagan snerist efnislega.

Fulltrúar allra félaga opinberra starfsmanna ætla að bera saman bækur sínar klukkan ellefu og stefnt er að því að sáttmálinn verði undirritaður kl. 13.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is