Þorvaldur Gylfason um dómstólaleiðina í Icesave – Hugsanlega lögleg en alltaf siðlaus
Þorvaldur Gylfason telur að það gildi einu hvort Íslendingum beri lagaleg skylda til að axla Icesave ábyrgðir eða ekki, það sé siðferðisleg skylda Íslands að axla ábyrgð á Landsbankanum. Þetta segir hann í grein í Fréttablaðinu í dag.
Þorvaldur rifjar upp að fjölda löglærðra manna hafi lýst þeirri skoðun í fjölmiðlum, að rétt væri að vísa málinu til dómstóla. Á hinn bóginn vitnar hann í skýrslu Jakobs Möllers, hæstaréttarlögmanns, þar sem fram kemur „að ítrekaðar yfirlýsingar íslenzkra stjórnvalda um, að staðið yrði við skuldbindingar íslenzku bankanna samkvæmt tilskipunum Evrópusambandsins um tryggingasjóði, bindi hendur stjórnvalda og samningar séu því nauðsynlegir og dómstólaleiðin komi af þeim sökum ekki til álita. Þetta sjónarmið verður ekki heldur vefengt. Hver vill vitandi vits eiga viðskipti við mann, sem er þekktur að því að víkja sér undan að efna gefin loforð með þeim rökum, að honum beri ekki lagaskylda til þess?“ spyr Þorvaldur Gylfason.
Sjónarmið Breta
Þrátt fyrir þetta segir Þorvaldur að Íslendingum beri siðferðisleg skylda til að standa við þessar skuldbindingar, jafnvel þó að niðurstaða yrði önnur fyrir dómsólum:
„Hugsum okkur, að úr því fengist skorið fyrir rétti, að Íslendingum bæri ekki lagaskylda til að greiða IceSave-ábyrgðirnar. Myndu Bretar þá með fulltingi annarra Evrópuþjóða falla frá kröfum sínum á hendur Íslendingum? Svarið er nei, ekki endilega. Krafa Breta væri þá siðferðileg frekar en lagaleg.
Skoðum ábyrgð Íslendinga á málefnum Landsbankans af sjónarhóli Breta. Ríkisstjórn Íslands seldi fyrir fáeinum árum ráðandi hlut í Landsbankanum í hendur feðgum tveim við þriðja mann. Faðirinn, Björgólfur Guðmundsson, gerðist formaður bankastjórnarinnar og gerði framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins að varaformanni sínum. Björgólfur eldri hafði þá sérstöðu meðal hugsanlegra kaupenda Landsbankans, að hann hafði fengið skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir bókhaldsbrot. Virt erlend dagblöð, þar á meðal Financial Times og Guardian á Bretlandi og Welt am Sonntag í Þýzkalandi, hafa velt vöngum yfir umsvifum Björgólfs Thors Björgólfssonar í Búlgaríu og annars staðar og hugsanlegum tengslum hans og þá um leið Landsbankans við rússneska auðmenn. Þrálátur orðrómur um fjárböðun íslenzkra banka fyrir rússneska auðkýfinga horfir nú öðruvísi við en áður. Íslendingar og umheimurinn eiga heimtingu á að fá að vita, hvort orðrómurinn á við rök að styðjast. Aðrar þjóðir hljóta að þurfa að fá að læra af mistökum íslenzkra banka og stjórnvalda, enda hafa þær ákveðið að rétta Íslandi hjálparhönd í gegnum Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Rannsóknarnefnd Alþingis og sérstakur saksóknari hljóta að taka þessa hlið málsins til vandlegrar skoðunar.“
Einkavæðing ríkisins brást
Grein Þorvaldar lýkur svo á þessum orðum:
„Bretar væru hirðulausir um eigin hag, ef þeir hefðu ekki kynnt sér sögu Landsbankans og feril eigenda hans. Leyniþjónusta Hennar hátignar fer létt með slíkt. Ríkisstjórn Íslands vandaði ekki vel til einkavæðingar Landsbankans. Gögn, sem forsætisráðuneytið hefur nú birt, taka af öll tvímæli um það. Íslenzkir ráðamenn voru sumir í vel þekktu vinfengi við Landsbankafeðgana. Forsætisráðherra sagðist reyna að hitta soninn í hvert sinn, sem hann kæmi til Íslands. Seta framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins við hlið Björgólfs eldra í bankaráðinu sendi sömu skilaboð. Bankastjórarnir sögðust hafa ríkisábyrgð. Stjórnvöld sögðust fram að hruni mundu styðja við bankana, ef á þyrfti að halda. Viðskiptavinir Landsbankans á Bretlandi voru því í góðri trú. Þess vegna kunna Bretar og aðrir að líta svo á, að Íslendingum beri siðferðileg skylda til að axla ábyrgð á Landsbankanum hvað sem lögunum líður.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is