Föstudagur 26.06.2009 - 10:51 - Ummæli ()

Geysir Green Energy kaupi orkuvinnsluhluta HS af Reykjanesbæ á 13 milljarða

hs.jpgÁ fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í gær kynnti Árni Sigfússon bæjarstjóri drög að samkomulagi sem fela í sér að Geysir Green Energy kaupi hlut Reykjanesbæjar í HS Orku fyrir 13 milljarða króna.

Samkvæmt frétt um drögin á á vb.is verða þrír milljarðar króna greiddir með peningum, fjórir milljarðar með hlut GGE í HS Veitum og sex milljarðar með skuldabréfi sem greiðist á 7 árum. Þá felur samkomulagið í sér að Reykjanesbær kaupir landsvæði og auðlindirnar af HS Orku fyrir 1,3 milljarða króna. Á móti fær bærinn auðlindagjald sem getur numið allt að 90 milljónum króna á ári.

HS Orka er vinnsluhluti Hitaveitu Suðurnesja, sem skipt var upp í lok síðasta árs. HS Orka sér um vinnslu á rafmagni og heitu vatni. Hinn hlutinn, HS Veitur sér um sölu og dreifingu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is