Þriðjudagur 30.06.2009 - 21:31
- Ummæli
()
Legókubbuð Amy Winhouse
Töffarinn Craig Stewens stendur hér montinn og ánægður með sig við hlið Amy Winehouse, úr Legókubbum.
Mannvirkið stendur í verslunarmiðstöð í London en Craig þessi sagði að það hefði aðeins tekið hann sex daga að klára Legó-Amy.
12,500 kubbar fóru í verkið.
Craig kubbar af lífi og sál en hann segist ungur hafa kynnst undraheimi Legókubbanna og nú má segja að hann sé fagmaður í að kubba.
Hann er einnig mjög ákafur Star-Wars maður og segist hafa himin höndum tekið þegar hann náði að sameina þessi tvö áhugamál með því að kubba geimflaugar og fleira.
Meira um kubbarann Craig má lesa á heimasíðu hans: http://www.modelsbycraig.com/
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is