Föstudagur 03.07.2009 - 11:38 - Ummæli ()

Ísland í 5. sæti þjóða sem taldar eru í mestri hættu á að verða gjaldþrota

isl_fani.jpgÍsland er í fimmta efsta sæti af þeim tíu þjóðum sem taldar eru í mestri hætti á að lenda í gjaldþroti. Þetta kemur fram í nýbirtum lista CMA, markaðsfyrirtækis í London sem heldur utan um skuldatryggingaviðskipti heimsins.

Vísir segir frá þessu í dag.

Fram kemur að samkvæmt listanum séu taldar tæplega 37% líkur á því að Ísland komist í þrot. Efst á listanum er Argentína en líkurnar á að það land komist í þroti eru sagðar metnar 72%.

Fyrir utan Argentínu eru Úkranía, Venesúela og Lettland fyrir ofan Ísland á listanum. Fyrir neðan Ísland eru löndin Dubai, Kazakhstan, Litháen, Búlgaría og Rúmenía.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is