Föstudagur 03.07.2009 - 05:55 - Ummæli ()

Íslenska bankahrunið stærra en stærstu gjaldþrot Bandaríkjanna – Enron og WorldCom

eva-jolysfo.jpgHrun íslensku bankanna síðastliðið haust er stærra en Enron og WorldCom málin, sem eru stærstu gjaldþrotamál í sögu Bandaríkjanna. Þetta segir Helge Skogseth Berg, norskur sérfræðingur, í samtali við Morgunblaðið í dag.

Berg þessi starfar á vegum Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara í rannsókn á bankahruninu.

„Málið er svo stórt að það er ómögulegt að segja hversu lengi ég mun koma að því,“ segir hann við blaðið. „Bankahrunið hér er stærra en Enron málið, sem árið 2001 var stærsta gjaldþrotið í sögu Bandaríkjanna. Það er líka stærra en WorldCom málið, sem árið 2002 var stærsta gjaldþrotið í sögu sama lands. Rannsóknin er því gríðarlega umfangsmikil og það mun krefjast ákveðinnar viðveru á Íslandi af minni hálfu að veita ráðgjöf vegna hennar.“

Fleiri saksóknarar auka skilvirkni rannsóknarinnar

Helge er staddur hér á landi ásamt Joly, sem nýlega gagnrýndi harðlega hversu lítið fé og mannskap rannsóknin hefur. „Mér skilst að nú sé komið í gang ferli til að fá fleiri saksóknara að málinu,“ segir Berg um þetta. „Í svo stórri rannsókn er gott að hafa nokkur sjálfstæð rannsóknarteymi því þá mun ekki öll rannsóknin geta tafist út af einhverju einu stóru máli. Rannsóknin getur gengið hraðar ef fleiri teymi vinna að ólíkum málum og þá er fé og starfsfólk líka nýtt betur. Það ætti þannig að vera skilvirkara að hafa fleiri saksóknara sem vinna samhliða að málunum.“

Hann segir helsta hlutverk sitt í rannsókninni verða að skýra hvað raunverulega olli því að íslensku bankarnir hrundu síðastliðið haust.

„Hluti verkefnisins verður að styðja sérstakan saksóknara í að finna áhugaverð mál til að rannsaka og gefa honum ráð um hvað gæti hugsanlega verið í þeim að finna. Ég er líka fenginn hingað til að finna út úr því hver ber ábyrgð á þessu bæði út frá refsirétti og hugsanlegum skaðabótum – hvort einhver getur talist bera fjárhagslega ábyrgð.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is