Föstudagur 03.07.2009 - 09:12 - Ummæli ()

Skilanefnd Landsbankans ræður Gunnar Sigurðsson fyrrum forstjóra Baugs stjórnarformann Hamleys

gunnar_sigurdsson.jpgSkilanefnd gamla Landsbankans hefur valið Gunnar Sigurðsson, fyrrum forstjóra Baugs í Bretlandi, sem stjórnarformann leikfangaverslunarkeðjunnar Hamleys. Nefndin fer með 63,7% hlut í Hamleys sem áður var í eigu Baugs.

Gunnar Sigurðsson var nánasti samstarfsmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fyrrum stjórnarformanns og aðaleiganda Baugs.

Frá þessu er greint á vefsíðu bresku verslunartíðindanna RetailWeek í dag. Lögð er áhersla á það í fréttinni að Gunnar hafi stjórnað Baugi þegar fyrirtækið varð gjaldþrota.

Ráðning Gunnars sem stjórnarformanns kemur í kjölfar uppstokkunar í stjórn Hamleys og meðal yfirmanna hjá fyrirtækinu.

Guðjón Reynisson er enn aðalforstjóri Hamleys. Hann var áður yfir 10-11 verslunum Baugs hér heima. Að sögn RetailWeek neitaði hann að tjá sig um ástæður þess að Gunnar var fenginn til að vera stjórnarformaður.  RetailWeek segir að það sé vel þekkt að þeir tveir séu góðir vinir.

Auk Gunnars Sigurðssinar sitja í stjórn Hamleys Sally Ingleson forstöðumaður áhættufjárfestinga hjá Landsbankanum, Pétur Halldórsson fyrrum yfirstjórnandi hjá Fons, sem áður átti 35% hlut í leikfangakeðjunni, og Alasdair Dunn fjármálastjóri Hamleys.

Skilanefnd gamla Kaupþings fer með hlut Fons í Hamleys sem þýðir að fyrirtækið er nánast eingöngu í eigu íslensku ríkisbankanna.

Auk stjórnarformennsku hjá Hamleys situr Gunnar Sigurðsson í stjórn Iceland-matvælakeðjunnar, House of Fraiser, Whistles og Aurum. Baugur átti stóra hluti í þessum fyrirtækjum áður en fyrirtækið varð gjaldþrota.

Í skilanefnd gamla Landsbankans eiga sæti Ársæll Hafsteinsson, hdl., Einar Jónsson, hdl., Lárentsínus Kristjánsson, hrl. og Sigurjón Geirsson, lögg. endurskoðandi. Lárus Finnbogason, lögg. endurskoðandi, sem var formaður nefndarinnar, sagði af sér um daginn. Ekki er kunnugt um hver kemur í nefndina í hans stað.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is