Mánudagur 06.07.2009 - 15:56 - Ummæli ()

Rannsókn: Nær fjórðungur íslenskra kvenna orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka

ofbeldi.jpgTæplega fjórðungur kvenna á Íslandi hefur orðið fyrir kynferðislegu, líkamlegu eða andlegu ofbeldi af hálfu maka, samkvæmt nýrri rannsókn, sem kynnt er í júlíútgáfu hjúkrunarfræði-tímaritsins Journal of Advanced Nursing. 18,2% sögðust hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi, 3,3% fyrir líkamlegu og 1,3% fyrir kynferðislegu ofbeldi.

Tæplega 3000 konur tóku þátt í rannsókninni, sem sagt er frá í frétt á Vísi.is.

Markmið rannsóknarinnar var að kanna heilsufarsleg áhrif heimilisofbeldis á konur.
Spurningar voru sendar til yfir 7000 kvenna hér á landi – á aldrinum 18 til 67. Svör bárust frá rétt rúmlega 2700. Er þetta ein viðamesta rannsókn sem gerð hefur verið á þessu sviði í heiminum.

Brynja Örlygsdóttir, doktor í hjúkrunarfræði og Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, stóðu að rannsókninni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is