Þriðjudagur 07.07.2009 - 16:57
- Ummæli
()
Alþingi: Önnur umræða um ESB-tillöguna á fimmtudaginn. Stefnt að þinghléi í næstu viku
Samkomulag hefur tekist á milli formanna þingflokkanna um að tillagan um umsókn Íslands að Evrópusambandinu komi á ný til umræðu á Alþingi á fimmtudaginn. Stefnt er að þinghléi í næstu viku.
Fram kemur að ákveðið hafi verið að hafa nefndardag á Alþingi á morgun í stað þingfundar til þess að meira ráðrúm fáist til að fara yfir Icesave málið í nefnd. Þá er haft eftir Ástu Ragnheiði að jafnframt þurfi gott ráðrúm til að fara yfir önnur mál sem lúti að efnahagsmálum, sérstökum saksóknara og gjaldeyrismálum. Þau mál öll þurfi að afgreiða fyrir lok sumarþingsins.
Loks var haft eftir Ástu að það sé í höndum formanns fjárlaganefndar hvenær takist að klára Icesave málið í þinginu.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is