Þriðjudagur 07.07.2009 - 16:51 - Ummæli ()

Angelina(34) og börnin sex

Sex barna móðirin Angelina Jolie fór með tvær elstu dætur sínar í danskennslu í Los Angeles í gær. 

Shiloh, 3 ára, and Zahara, 4 ára, voru báðar í svörtum leggins en mamman í stórum svörtum, ermalausum kjól, sandölum og með flugstjórasólgleraugu (lesið áfram….)

article-0-059e8cf4000005dc-439_468×715.jpg

Stelpurnar gátu ekki hamið sig á heimleiðinni og snerust í höndum mömmu sinnar en þátturinn sem þær æfa kallast Prinsessu serían. Eitthvað sem höfðar vel til stelpna á þessum aldri…

article-0-059e9a92000005dc-823_468×760.jpg

Fjölskyldan hefur verið dugleg að forðast sviðsljósið að undanförnu, svo dugleg að það hafa vaknað upp spurningar um heilsu tvíburanna, Knox og Vivienne sem fæddust fyrir rétt tæpu ári þann 12 júlí.

Fregnir herma að Knox eigi í erfiðleikum með að halda niðri mat og að Vivienne sé með margskonar ofnæmi. Til dæmis sé hún á laktósa og glúteinlausu mataræði þessa dagana svo að foreldrarnir geti komist að því hvað amar að.

article-1198014-059ee39e000005dc-187_468×499.jpg

Angelina sem er 34 ára lét hafa það eftir sér nýlega að hún og Brad hefðu kannski ekkert á móti því að eignast fleiri börn. „Við elskum börn, okkur langar í stóra fjölskyldu og því á maður aldrei að segja aldrei“

Shiloh og Zhara eiga bræðurna Maddox sem er 7 ára og Pax sem er 5 ára.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is