Þingmanni VG hótað stjórnarslitum ef hann flytti tillögu um tvölfalt þjóðaratkvæði um ESB
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, segist ætla að styðja tillögu Sjálfstæðisflokks um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að ESB.
Ásmundur lýsti því, þegar málið kom til umræðu á Alþingi undir hádegi, að hann hefði verið beittur þrýstingi í málinu. Hann sagði að sér hefði borist til eyrna að afstaða hans gæti orðið tilefni til stjórnarslita, og sér hefði ekki verið gefið tækifæri til að fylgja eigin sannfæringu í afstöðu sinni til þingsályktunartillögunnar um aðild að Evrópusambandinu.
Ásmundur ætlaði að vera einn af meðflutningsmanna að breytingartillögu við þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um aðild að Evrópusambandinu þar sem gert var ráð fyrir tvöfaldri þjóðaratkvæðagreiðslu, en hætti við það vegna þessa.
Hann sagði að þingið hefði verið tekið í gíslingu í ESB-málinu, og ef hver og einn þingmaður myndi fylgja samvisku sinni væri meirihluti fyrir tvöfaldri atkvæðagreiðslu um málið.
Hann hvatti jafnframt þingmenn til að styðja tillögu um tvöfalda atkvæðagreiðslu, en sagðist sjálfur ekki ætla að taka þátt í umræðunni frekar í dag. Önnur umræða um ESB umsóknina hófst klukkan 12:45.
Forseti Alþingis ákvað að tvöfalda ræðutíma þingmanna í umræðunni eftir eindregnar óskir þingmanna um það í ljósi mikilvægis þess.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu harðlega það sem þau kölluðu kúgun þingmannsins. Tveir þeirra sögðust ekki heldur ætla að taka þátt í umræðunni, þau Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Margrét Tryggvadóttir, Borgarahreyfingunni.
Steingrímur J. Sigfússon formaður VG hafnaði því að skoðanakúgun ætti sér stað innan meirihlutans í ESB málinu. Þingmaðurinn myndi taka þátt í atkvæðagreiðslu um málið þar sem hann væri ekki bundinn neinu öðru en eigin sannfæringu í þessu máli sem öðrum.
Fjórir þingmenn allra flokka nema Samfylkingarinnar sátu í gærkvöld við að setja saman umrædda breytingatillögu samkvæmt frétt RÚV.
Í henni er gert ráð fyrir að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort fara eigi í aðildarviðræður. Einnig er lagt til að aðildarsamningur verði ekki borinn undir þjóðina fyrr en að loknum aðildarviðræðum og breytingu á stjórnarskrá. Breytingatillagan gerir síðan ráð fyrir að nýtt þing staðfesti samninginn og á þann hátt eigi þjóðin síðasta orðið.
Verði þessi tillaga ofan á seinkar hún umsóknarferlinu til muna, en Samfylkingin stefnir að því að leggja fram aðildarumsókn á fundi utanríkisráðherra ESB 27. júlí.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is