Sunnudagur 12.07.2009 - 08:18 - Ummæli ()

Spá Stöðvar 2, Morgunblaðsins: ESB umsókn verður samþykkt

althingishus01.jpgLíklegt er talið að Alþingi samþykki á morgun eða á þriðjudag þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að Ísland sæki um aðild að ESB.

Í umfjöllun Stöðvar 2 í gær var því spáð að breytingartillögur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokki yrðu felldar þó svo að einhverjir þingmenn Vinstri grænna styddu tillögu Sjálfstæðismanna um tvöfalda atkvæðagreiðslu.

Heimildarmenn Morgunblaðsins reikna á sama hátt með að aðildartillagan sjálf verði samþykkt, annaðhvort með því að meirihluti þingmanna greiði henni atkvæði eða nægilega margir sitji hjá við atkvæðagreiðsluna til að hún nái samþykki.

Stöð 2 gengur út frá að allir 16 þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði gegn tillögunni, sem sé þó alls ekki öruggt. Ragnheiður Ríkharðsdóttir sé líkleg til að sitja hjá eða greiða tillögunni atkvæði sitt. Í umfjölluninni er einnig reiknað er með að allir þingmenn Borgarahreyfingarinnar styðji tillöguna, miðað við yfirlýsingar þeirra í upphafi máls og í umræðunni.

Stöð 2 segist telja líklegt, eftir að hafa rætt við fjölmarga þingmenn og áhrifafólk í VG að níu af 14 þingmönnum flokksins veiti tillögunni brautargengi: Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Björn Valur Gíslason, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Lilja Mósesdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir og Ögmundur Jónasson. Fimm þingmenn flokksins, þar af einn ráðherra, muni hins vegar greiða atkvæði gegn tillögunni; eða þau Ásmundur Einar Daðason, Atli Gíslason, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Jón Bjarnason sjávar- og landbúnaðarráðherra og Þuríður Backman.

Tveir þingmenn Framsóknarflokksins, þau Guðmundur Steingrímsson og Siv Friðleifsdóttir hafa lýst yfir stuðningi við tillöguna. Óljóst sé með Birki Jón Jónsson sem hefur verið jákvæður út í aðildarumsókn, en aðrir þingmenn Framsóknarflokksins með Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann flokksins í broddi fylkingar, muni væntanlega allir greiða atkvæði gegn aðildarumsókninni.

Verði þetta niðurstaðan verður aðildarumsóknin samþykkt með 35 atkvæðum gegn 28, sagði stöð 2 í frétt sini í gær „með þeim fyrirvara að málið er ekki afgreitt fyrr en til atkvæðagreiðslunnar kemur og nokkrir dagar í pólitík eru langur tími“.

Yfirlýsingar Birgittu Jónsdóttur þingmanns Borgarahreyfingarinnar í gærkvöldi um að hún væri hætt við stuðning breyta hins vegar myndinni nokkuð og fækkar stuðningsatkvæðunum um eitt.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is