Ólöf Nordal: Seðlabankastjóri kynnti þingnefndum minnisblað lögmanna SÍ sem álit bankans
(Uppfært) Svein Harald Øygard seðlabankastjóri og sérfræðingar hans kynntu minnisblað tveggja lögfræðinga bankans ekki sem persónulegt álit lögfræðinganna heldur álit bankans á sameiginlegum fundi fjárlaganefndar og efnahags- og skattanefndar þingsins fyrir helgi. Þetta er haft eftir Ólöfu Nordal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, í frétt Viðskiptablaðins.
Í áliti lögfræðinganna, Sigríðar Logadóttur, aðallögfræðings bankans og Sigurðar Thoroddsen, eru Icesave-samningarnir harðlega gagnrýndir. Minniblaðið er birt á vef Alþingis.
Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri Seðlabankans sagði í yfirlýsingu í dag, að fulltrúar Seðlabankans myndu kynna „fullunnið álit“ bankans á fundi með fjárlaganefnd á morgun og að það álit sem kynnt var á fundinum með þingnefndunum á föstudag hafi verið drög.
Lögfræðiálitið svo og mat bankans á efnahagslegum áhrifumIcesave-samninganna verða birt eftir fundinn á morgun.
Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar þingsins, sagði í morgun að hann hefði fengið sérstaka yfirlýsingu frá bankanum í gærkvöldi um að minnisblaðið hefði verið persónulegt álit lögfræðinganna tveggja. Morgunblaðið hefur eftir Árna Þór: „Þetta er ekki formlegt álit Seðlabankans á Icesave-samningunum. Það kemur skýrt fram í bréfi sem ég fékk frá yfirlögfræðingi Seðlabankans í gærkvöld að það beri ekki að líta á þetta sem umsögn Seðlabankans. Þá kemur fram að verið sé að klára vinnu við umsögn Seðlabankans um málið.“ Árni segir málið lykta af pólitík og að hann velti fyrir sér hvort þetta sé „ekki bara fólk sem er ennþá í vinnu hjá gamla seðlabankastjóranum.“
Sigríður Logadóttir hefur gegnt stöðu aðallögfræðings bankans frá 2004.
Ólöf Nordal segir í samtali við Viðskiptablaðið að Svein Harald Øygard hafi á fundi nefndanna á föstudag greint frá áliti bankans á Icesave-málinu og um leið kynnt umrætt minnisblað. Síðan hefðu viðkomandi lögfræðingar gert nefndarmönnum nánari grein fyrir því. Hún segir ekki hafa verið hægt að skilja mál bankastjórans og starfsmanna hans öðruvísi en svo að þetta væri álit bankans. Það sé því eftiráskýring að þetta sé persónulegt álit lögfræðinganna.
„Mér finnst fyrir neðan allar hellur hvernig haldið hefur verið á þessu máli,“ segir Ólöf. „Þegar lögfræðingar bankans gefa út sína skoðun er trúverðugleiki þeirra dreginn í efa og blandað inn í þetta Davíð Oddssyni, sem búið er að víkja úr bankanum með miklu offorsi.“
Ólöf vill að Árni Þór biðjist afsökunar á orðum sínum. Hún segist óttast að þeir sem sitji við stjórnvölinn vilji stjórna Seðlabankanum og að nú eigi að gefa út álit sem sé þeim í hag. Það sé hins vegar grundvallaratriði að Seðlabankinn sé sjálfstæður.
Sjá einnig umfjöllun Eyjunnar um málið frá í morgun.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is