Miðvikudagur 29.07.2009 - 07:19 - Ummæli ()

Skuldastaða þjóðarbúsins versnar við að móðurfélög álfyrirtækja færa skuldir í dótturfélög á Íslandi

alcoa.jpgMóðurfélög álfyrirtækjanna hafa fært gríðarlegar skuldir á dótturfélög sín á Íslandi, en það skaðar mjög skuldastöðu landsins og veldur verra mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Dótturfélög skulda móðurfélögunum 284 milljarða króna, samkvæmt frétt Fréttablaðsins í dag.

Í umsögn Seðlabankans vegna Icesave-samninganna kemur fram að í lok mars nemi eigið fé erlendra aðila í fyrirtækjum hér á landi, eða lán móðurfélaga til dótturfyrirtækja, tæplega 600 milljörðum. Álfyrirtækin eru langstærstu fyrirtækin og eiga stærstan hluta þessarar upphæðar.

Hrein lán frá móðurfélögum til dótturfyrirtækja nema um 284 milljörðum króna. Hinn helmingurinn, um 310 milljarðar, er eigið fé sem móðurfélögin eiga inni hjá dótturfélögunum.

Þessi lánastarfsemi eykur heildarskuldir þjóðarbúsins, en hvatinn að henni er skattalegt umhverfi áliðnaðarins hér, sem er óvenju hagstætt. Skuldir álfélaganna er það sem skilur á milli mats Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á skuldastöðu þjóðarbúsins.

Skuldir dótturfélaga álfyrirtækja 40% af landsframleiðslu

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er mat AGS að heildarskuldir Íslands nemi um 240 prósentum af vergri landsframleiðslu (VLF) 2009, en samkvæmt mati sjóðsins frá því í nóvember væri slík skuldastaða ósjálfbær. Seðlabankinn metur þær um 205 prósent. Það sem skilur á milli eru þessar skuldir dótturfélaganna, en þær eru um 40 prósent af VLF. Svein Øygard seðlabankastjóri hefur sagt að bankinn liti svo á að móðurfélögin stæðu á bak við skuldir dótturfélaga álfyrirtækjanna.

Lánin til dótturfélaganna geta borið 8 til 17 prósent vexti. Þar með fer ákveðinn hluti hagnaðar álfyrirtækjanna í vaxtagreiðslur af lánum, sem þýðir að skattstofninn minnkar, þar sem vaxtakostnaður er ekki skattskyldur.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir það vekja athygli hve skuldsett dótturfélögin séu gagnvart móðurfélögunum. „Þetta þarf að skoða nánar, enda er þetta stórt dæmi ef á að teljast með heildarskuldunum. Það hefur bæði áhrif á afkomu fyrirtækjanna og skattgreiðslur.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is