Kate Moss (35) Berar að ofan!
Kate Moss, kærasti hennar og vinkonur hennar voru ekki sérlega meðvituð um kristilega blygðunarkennd þegar þau sigldu um á snekkju við strendur St. Tropez í gærdag.
Og þrátt fyrir að vera stödd ásamt kærasta sínum, rokkaranum Jamie Hince og nokkrum gullfallegum berbrjósta vinkonum, virtist Kate örugg með sinn mann og afslöppuð í nektinni.

Vinkona Kate, hin síðhærða ljóska Karen Mulder er einnig fræg fyrirsæta og paparazzi ljósmyndarinn sem náði þessum myndum var ekki síður áhugasamur þegar hann smellti myndum af henni.

Þegar hópurinn kom sér í land fengu þau sér öll að borða á veitingastað St. Tropez sem kallast Club 55.

Ekki amalegt líf hjá þessum káta flokki af fólki á fertugs og fimmtugsaldri.

Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is