Föstudagur 07.08.2009 - 14:31 - Ummæli ()

Brotamál til rannsóknar í bankahruninu gætu orðið 60 á næsta ári

gunnar-andersen-fme.jpgGunnar Þ. Andersen forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir FME hafa sent sérstökum saksóknara nálægt 20 mál og að þeim eigi eftir að fjölga tvö- eða þrefalt út þetta ár og á því næsta.

Þetta kemur fram í frétt mbl.is þar sem einnig er haft er eftir Gunnari að vinnan sé gríðarlega tímafrek. Þannig segir Gunnar að skoðaðir hafi verið um 800 tölvupóstar í einu máli.

Gunnar vill ekki tjá sig um niðurstöður úr rannsókn á falli Hróarskeldubanka í Danmörku fyrir um ári, en á grundvelli hennar hefur skilanefnd bankans nú tilkynnt að hún muni ákæra fyrrum bankastjóra bankans og endurskoðunarfyrirtækið Ernst og Young. Gunnar segir að þar sé um að ræða meint umboðssvik af hálfu bankastjórnarinnar, það er að taka á móti innlánum vitandi um slæma stöðu bankans.

Gunnar sagði að þau mál sem FME hafi unnið að snéru helst að markaðsmisnotkun og innherjaviðskiptum, en að þau væru hins vegar ekki enn komin á það stig að hægt væri að tala um umboðssvik.

Báðir þeir Gunnar og Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, telja vert að kynna sér hvort skýrsla skilanefndar danska bankans geti nýst við rannsókn bankahrunsins hér heima og talið er að ákæran í Danmörku geti haft fordæmisgildi hér á landi.

Rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið hefur einnig kynnt sér viðbrögð Dana við falli Hróarskeldubanka. Í sumar áttu nefndarmenn þannig fund í Kaupmannahöfn með starfsmönnum Ríkisendurskoðunar Dana um athugun sem sú stofnun hefur unnið að á starfsemi Fjármálaeftirlitsins í Danmörku þar sem sjónum var sérstaklega beint að því hvernig eftirlitið hefði staðið að málum í tilviki Roskilde Bank sem féll í júlí 2008.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is