Þriðjudagur 11.08.2009 - 07:19 - Ummæli ()

Talsmaður Deutsche Bank hafnar fullyrðingum Sigurðar Einarssonar: Kaupþing átti hugmyndina

kaupthing-lux1.jpgDeutsche Bank hafnar þeim fullyrðingum Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, að bankinn hafi ráðlagt Kaupþingi að láta reyna á það að kaupa skuldatryggingar á sjálfan sig. „Þeir komu til okkar og báðu okkur um að útbúa þessi viðskipti. Þetta var ekki okkar hugmynd,“ sagði fulltrúi bankans í samtali við Morgunblaðið í gær. Að sögn hans var um að ræða mjög algeng viðskipti með skuldatryggingar og samningarnir hafi haft óveruleg áhrif á verð með skuldatryggingar Kaupþings.

Tilefni fyrirspurnar blaðsins er að í bréfi Sigurðar til vina og vandamanna um þetta mál í janúar s.l. sagði m.a.:

„Að tillögu Deutsche Bank var ákveðið að láta reyna á hvað myndi gerast ef bankinn myndi sjálfur fara að kaupa þessar tryggingar. Það var hins vegar ekki einfalt mál, þar sem bankinn gat ekki keypt tryggingar á sjálfan sig. Því var gripið til þess ráðs að fá viðskiptavini okkar sem við treystum vel og höfðum átt langvarandi samskipti við sem byggðust á trausti og hollustu til að eiga þessi viðskipti fyrir hönd bankans. Vitanlega hefðum við aldrei átt þessi viðskipti nema vegna þessara sérstöku aðstæðna. Viðskiptin voru gerð með hagsmuni bankans að leiðarljósi og í fullu samræmi við lög og reglur.“

En þrátt fyrir að Deutsch Bank neiti fyrir þetta núna, þá ganga heimildir  Morgunblaðsins innan úr gamla Kaupþingi gegn orðum fulltrúa Deutsche. Þvert á móti hafi þýski bankinn sjálfur lánað „hundruð milljóna“ evra í verkefnið. Verð á skuldatryggingum er notað sem mælikvarði á það traust sem bankar njóta á alþjóðlegum markaði. Sumarið 2008 var verðmyndun með þessar tryggingar Kaupþingi mjög óhagstæð og var hátt skuldatryggingaálag tilefni neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um bankann.

Lánveitingar Kaupþings til Trenvis Ltd., félags í eigu Kevins Stanfords, eru sem kunnugt er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara vegna gruns um markaðsmisnotkun. Það félag fékk 41,7 milljónir evra, eða um 7,5 milljarða króna, í þeim eina tilgangi að kaupa afleiður á skuldatryggingar á Kaupþing með það fyrir augum að hafa áhrif á verð trygginganna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is