Fimmtudagur 13.08.2009 - 12:54
- Ummæli
()
Agyness (26) Heiðrar stíl Jacksons
Fyrirsætan Agyness Deyn heiðrar tískuvit Michaels Jacksons í myndaþætti fyrir september heftið af tímaritinu Harpers Bazaar.

Í leðurgalla áþekkum þessum var Michael Jackson í myndbandinu við lagið Thriller.
Í myndaþættinum stillir þessi 26 ára gamla fyrirsæta sér upp að hætti söngvarans í fötum sem minna á stíl hans í gegnum tíðina en stelpan er þekkt fyrir sérstakan og öðruvísi stíl. Myndirnar tók hinn eftirsótti tískuljósmyndari Terry Richardson.

Enginn annar en Michael Jackson hefur tekið upp á því að klæðast bara einum, glitrandi hanska.

Agyness og simpansi sem minnir á fyrrum félaga Jacksons heitins, Bubbles.

„Who’s bad?“ Agyness í hermannajakka og með hanskann góða.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is