Fimmtudagur 13.08.2009 - 07:26 - Ummæli ()

Eigendur Exista telja að ríkisbankarnir vilji „knýja Exista í gjaldþrot“

exista.jpg„Hagsmunir Kaupþings (gamla) og Glitnis (gamla) snúast ekki um að tryggja að Exista og eignir þess skili sem mestum arði til að unnt sé að endurgreiða skuldir félagsins. Þvert á móti snúast hagsmunir þeirra um að knýja Exista í gjaldþrot,“ segir Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, í bréfi, dagsettu 7. ágúst, til skilanefndar Landsbankans sem Morgunblaðið hefur undir höndum.

Exista er móðurfélag Skipta (Símans), tryggingafélaganna VÍS og Lífís og eignaleigufyrirtækisins Lýsingar. Núverandi eigendur Exista róa nú lífróður til að halda yfirráðum sínum yfir félaginu. Skilanefnd Glitnis hefur höfðað mál á hendur Exista vegna vangoldinna krafna.

Landsbankinn vill ekki funda með Exista

Þá segir Morgunblaðið að skilanefnd Landsbankans hafi ekki orðið við kröfu stjórnenda Exista um fund til að fara yfir málefni félagsins.

Fyrir hefur legið í nokkurn tíma að greiðslustöðvun vofir yfir félaginu. KPMG í Bretlandi og á Íslandi vinnur nú að beiðni erlendra kröfuhafa að endurskoðuðu mati á virði eigna Exista við gjaldþrot. Bráðabirgðaniðurstaða bendir til að endurheimtur kröfuhafa verði á bilinu 1-7%. Núverandi eigendur Exista telja að betur megi verja hagsmuni kröfuhafa með þeim úrræðum sem þeir leggi til.

Eigendur hafa í raun tapað yfirráðum yfir félaginu

Innlendir kröfuhafar segja hins vegar að Exista sé í dag aðeins „regnhlíf yfir eignir“ og verðmæti undirliggjandi eigna muni ekki raskast við breytt eignarhald. Eigendurnir hafi í reynd tapað yfirráðum yfir félaginu.

Stærstu innlendu kröfuhafar Exista sendu félaginu bréf í lok maí þar sem þeir lýstu yfir vilja til að taka félagið yfir og setja stjórnendur þess til hliðar. Forstjórar félagsins eru tveir, Sigurður Valtýsson og Erlendur Hjaltason.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vilja skilanefndirnar m.a. gera breytingar á rekstri Exista og skera niður rekstrarkostnað, þ.ám launakostnað, sem þykir heldur hár hjá félaginu.

 


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is