Fimmtudagur 13.08.2009 - 13:34 - Ummæli ()

Pétur Blöndal í fótspor Evu Joly. Birtir grein til varnar Íslandi í erlendum fjölmiðlum

peturblondal.jpgPétur Blöndal þingmaður Sjálftæðisflokksins hefur farið að fordæmi Evu Joly og sent grein til varnar málstað Íslands í Icesave-deilunni til fjölmargra erlendra fjölmiðla. Íslensk útgáfa greinarinnar er birt í Morgunblaðinu í dag.

Ekki kemur fram hvar greinarnar verða birtar erlendis. Íslenskir ráðherrar hafa verið hvattir til að skrifa greinar um málið í erlend blöð, en þeir hafa enn ekki gert það.

Pétur rekur sögu Icesave-reikninganna og deilunnar sem hófst eftir bankahrunið í heild. Hann segir að bresk og hollensk yfirvöld verði að átta sig á því að íslenska þjóðin, sem telji 300 þúsund manns, standi nú frammi fyrir einu stærsta efnahagslega áfalli sem þjóð hafi lent í. Meðferðin sem Ísland hljóti af hálfu vina sinna og bandamanna í Bretlandi, Hollandi og víðar verði skráð í sögubækur og komi til með að verða minnisvarði um sanngirni Evrópusambandsins og hlutleysi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Pétur segir að það þurfi að endurhugsa algerlega Icesave-deiluna og finna sanngjarna lausn.

Grein Péturs er birt hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is