Þekktur brasilískur glæpamaður handtekinn í Leifsstöð. Strauk úr fangavist í Brasilíu
Einn þekktasti glæpamaður Brasilíu, lýtalæknirinn Hosmany Ramos, situr nú í gæsluvarðhaldi í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Hann var tekinn með falskt vegabréf á Keflavíkurflugvelli í gær.
Þetta kemur fram á vefmiðlinum Vísi.
Greint er frá því að Ramos sé eftirlýstur í Brasilíu eftir að hafa fengið heimfararleyfi úr fangelsinu yfir jólahátíðina síðustu og ekki snúið aftur.
Fram kemur að Ramos er fæddur árið 1947 og er menntaður lýtalæknir. Hann er sagður hafa verið einn virtasti læknirinn á sínu sviði í Rio de Janeiro á áttunda áratugnum og talið stjörnur á borð við Pelé, Joan Collins og Biöncu Jagger til vina sinna. Sagt er að hann hafiu búið í glæsiíbúð á Copacobana ströndinni og ekið um á lúxusbílum en á sama tíma verið stórtækur glæpamaður. Hann hafi smyglað eiturlyfjum á milli landa, meðal annars í einkaþotu sinni og haldið úti hópum manna sem stundað hafi það að ræna ríka fólkið sem hann gerði sér dælt við.
Í fangavist sinni hefur Ramos skrifað fjölda bóka og deilt á fangelsiskerfið í Brasilíu. Þá hefur tilkynnt framboð sitt í næstu forsetakosningum þar í landi og heldur úti vefsíðu til að kynna það.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is