Miðvikudagur 19.08.2009 - 16:07 - Ummæli ()

Aðgerðahópur veldur milljónatjóni á erfðabreyttu byggi í tilraunareit ORF Líftækni

orf-bygg.jpgAðgerðahópur sem nefnir sig Illgresi hefur unnið umtalsvert skemmdarverk á tilraunareit  ORF Líftækni í Gunnarsholti. Hópurinn eyðilagði allt erfðabreytt bygg sem var í ræktun á reitnum og sendi tilkynningu um verknaðinn til fjölmiðla.

Talið er að skemmdarverkið hafi verið unnið í nótt eða í morgun og að tjónið nemi milljónum króna.

Ræktunin er liður í rannsóknar- og þróunarstarfsemi fyrirtækisins sem miðar að því að framleiða verðmæta afurðir fyrir læknisfræðilegar rannsóknir, snyrtivöruiðnaðinn og lyfjaþróun, að því er segir í tilkynningu ORF í dag. ORF segir ljóst að ekki fáist uppskera úr tilraunareitnum í haust líkt og stefnt var að.

Ræktunin hefur verið all-umdeild en undanþága var gefin fyrir henni í sumar.

Í nafnlausum tölvupósti frá hópnum í dag eru tilraunir ORF með ræktun á erfðabreyttu lyfjabyggi sagðar ryðja brautina fyrir ræktun erfðabreyttra lífvera almennt á Íslandi að allar gagnrýnar raddir, stofnana og einstaklinga vegna málsins hafi verið gerðar tortryggilegar. „Sú litla fjölmiðlaumfjöllun sem farið hefur fram hefur verið með fádæmum einsleit og hlutdræg með starfsemi Orfs,“ segir í yfirlýsingunni.

„Í dag hefur þetta leyfi verið afturkallað,“ segir Illgresi og að ástæðurnar séu meðal
annars skortur á lýðræðislegri umræðu um málið, spilling við rannsóknir og leyfisveitingar og hætta sem umhverfinu og dýrum stafi af slíkum tilraunum.

„Eftirlitsaðilar okkar jöfnuðu á dögunum tilraunareit Orfs í Gunnarsholti við jörðu. Héðan í frá munu erfðabreytingar ekki fara fram á íslandi án okkar íhlutunar,“ segir hópurinn í tilkynningunni.

Forsvarsmenn ORF Líftækni lýsa miklum vonbrigðum sínum með „að hér finnist einstaklingar sem eru tilbúnir til að grípa til skemmdarverka að fyrirmynd erlendra öfgahópa til að vinna gegn mikilvægri nýsköpun sem fyrirtækið vinnur að á Íslandi við erfiðar aðstæður,“ segir í tilkynningu ORF.

Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri ORF Líftækni, segist í samtali við Vísi.is ekki skilja hvað hópurinn eigi við. „Þetta fékk mjög góða og faglega umfjöllun hjá Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun. Ef það er ekki hægt að treysta okkar færasta vísindafólki í þessu þá veit ég ekki hvert er hægt að leita,“ segir hann.

„Fyrir lítið fyrirtæki eins og okkar sem er að berjast við erfiðar aðstæður í nýsköpun er þetta náttúrulega ekki gott mál,“ er haft eftir Birni. ORF hefur kært skemmdarverkið til lögreglu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is