Miðvikudagur 19.08.2009 - 17:26
- Ummæli
()
Björgólfsfeðgar með 50 Cent
Mynd frá 2007 af feðgunum Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni ásamt rapparanum heimsfræga 50 Cent gengur nú ljósum logum á netinu.
Myndin er tekin á hápunkti útrásaráranna, í einni frægustu veislu útrásarvíkinganna: fertugsafmæli Björgólfs Thors á Jamaica í Karíbahafi í lok mars 2007. Til veislunnar var boðið 130 manns í beinu lúxusflugi frá Íslandi án þess að boðsgestir vissu hvert ferðinni var heitið.
Dagblaðið The Jamaica Observer greindi frá því að skipuleggjandi veislunnar hafi fengið um 3 milljónir dollara til þess að gera hana sem glæsilegasta. Það nam rúmum 200 milljónum króna þá en rúmlega 380 milljónum króna á fallandi gengi krónunnar í dag.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is