Fjögur mál þegar verið höfðuð gegn íslenska ríkinu og bönkunum
Fjögur mál erlendra fjármálastofnana hafa verið þingfest gegn íslenska ríkinu og gömlu bönkunum. Samkvæmt frétt RÚV snúast málin öll um að ekki hafi verið staðið rétt að yfirtöku ríkisins á gömlu bönkunum og tvö þeirra tengjast yfirtökunni á SPRON.
Beðið er úrskurðar Hæstaréttar í því máli sem lengst er komið, máli Ares-bank á Spáni gegn Fjármálaeftirlitinu og ríkinu. Ares átti kröfu á gamla Landsbankann og telur spænski bankinn að flytja hefði átt kröfuna yfir í Nýja Landsbankann. Héraðsdómur nýlega að kveða þyrfti til matsmenn í málinu. Ríkið áfrýjaði þeirri niðurstöðu til Hæstaréttar og er úrskurðar hans nú beðið.
Tvö málanna tengjast yfirtökunni á SPRON í mars og höfða 26 erlend fjármálafyrirtæki þau mál flest þeirra eru þýsk og í þeim hópi eru meðal annars stórir bankar. Þessi mál verða tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur 1. september.
Baldvin Björn Haraldsson lögmaður sem rekur málið fyrir hönd þessara banka segir að þessir lánveitendur séu ekki tilbúnir að sætta sig við hvernig tekið var á yfirtökunni. Baldvin segir engar fjárkröfur í málinu núna. Fyrst eigi að fá skaðabótaskylduna viðurkennda. Hann segir að kröfurnar á SPRON hlaupi á nokkrum milljörðum.
Samkvæmt frétt RÚV höfða jafnframt nokkrir þýskir bankar skaðabótamál gegn íslenska ríkinu vegna neyðarlaganna sem sett voru í haust. Í þessu máli hafa málsaðilar frest til þar til seinni partinn í september að skila greinargerðum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is