Föstudagur 21.08.2009 - 18:11
- Ummæli
()
Alvarlegum vanskilum fjölgar ört. 20 þúsund á vanskilaskrá. Verða 30 þúsund innan árs
Færri heimili hafa orðið gjaldþrota eða komist í greiðsluþrot það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra. Alvarlegum vanskilum fjölgar hins vegar ört.
Nú eru um 20 þúsund einstaklingar á vanskilaskrá en verða fyrirsjáanlega um 30 þúsund innan 12 mánaða. Þetta kemur fram í frétt RÚV. Þar er haft eftir Rakel Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Creditinfo, að nauðsynlegt sé að bjóða fólki úrræði til að koma í veg fyrir greiðsluþrot miklu fyrr en gert sé nú.
Samkvæmt upplýsingum Creditinfo hafa innan við 200 einstaklingar orðið gjaldþrota á ári undanfarin ár og um 5.000 orðið greiðsluþrota, það er árangurslaust fjárnám hefur farið fram en viðkomandi ekki formlega lýstur gjaldþrota.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is