Föstudagur 21.08.2009 - 17:02 - Ummæli ()

Framkvæmdastjóri SI: Hringlandaháttur að ríkið rjúki í að kaupa hlut í HS Orku

jon-steindor.jpgJón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir viðbrögð við fjárfestingaráformum kanadíska fyrirtækisins Magma Energy í orkuvinnslu hér á landi.

Hann segir það vera „með ólíkindum að á síðustu stigum þess máls skuli rokið upp til handa og fóta til þess að ríkið kaupi hlutinn í stað hinna erlendu fjárfesta.“

„Fyrir utan hið augljósa, sem er að ríkið hefur annað við fé sitt að gera og við þurfum nauðsynlega á gjaldeyri að halda, þá er það æði sérkennileg staða fyrir erlendan fjárfesti að standa fyrirvaralaust frammi fyrir þessari samkeppni af hálfu ríkisins,“ segir Jón Steindór í pistli á heimasíðu SI.

„Stjórnvöld verða að standa sig betur í þessum efnum. Við höfum ekki ráð á hringlandahætti í þessum efnum. Hringlandaháttur skapar okkur ekki traust,“ segir hann.

Hann segir augljóst að til þess að efla og styrkja hæfni atvinnulífsins þurfi erlent fjármagn í formi lána en ekki síður í formi eigin fjár í atvinnurekstri og að forsenda þess sé að Íslandi takist að ávinna sér traust lánveitenda og fjárfesta, segir Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri SI.

„Það er áhyggjuefni hve okkur virðast mislagðar hendur við að laða hingað erlenda fjárfesta. Gildir það bæði um hin pólitísku stjórnvöld og stjórnsýsluna. Þetta er sérstaklega alvarlegt þegar um fjárfesta er að ræða sem eru tilbúnir til þess að koma með verulegt fjármagn til uppbyggingar nýrrar starfsemi eða auka og efla það sem fyrir er. Stundum virðist manni að stefnu en ekki síður vilja skorti í þessum efnum,“ segir Jón Steindór.

Viðskiptaráð sendi líka frá sér yfirlýsingu um málið í dag, þar sem dregið er í efa,  út frá hagkvæmnis– og samkeppnissjónarmiðum, að hugsanleg íhlutan hins opinbera í málefni HS Orku, þar sem opinbert eignarhald er leiðarljósið, sé rétta leiðin.

Í yfirlýsingunni segir m.a.: „Hvað hagkvæmni varðar þá er ljóst að ábati af orkunýtingu er bundinn þeim takmörkunum að hann byggir á viðamiklum og fjármagnsfrekum framkvæmdum. Slíkar fjárfestingar geta þá til lengri tíma litið skapað þjóðarbúinu mikilvægar gjaldeyristekjur og viðhaldið jafnframt atvinnustigi. Þær aðstæður sem nú eru uppi í efnahagslífinu kalla beinlínis á slíkar framkvæmdir, líkt og stöðugleikasáttmálinn ber með sér. Erfitt er hins vegar að sjá hvernig slíkum verkefnum verður hrint í framkvæmd við núverandi aðstæður með ríkið sem fjárhagslegan bakhjarl. Áhættuverkefni sem þessi ættu jafnframt almennt ekki að vera fjármögnuð af skattgreiðendum, enda utan þess ramma sem þjónustuframboð hins opinbera fellur undir. Að auki má ekki horfa framhjá því, þó það eigi vissulega ekki ráða för, að þörf þjóðarbúsins fyrir erlenda fjárfestingu hefur aldrei verið meiri.“

Þá dregur VÍ í efa  að hugsanleg aðkoma ríkisins og Reykjavíkurborgar, sem eigenda Landsvirkjunar og Orkuveitunnar, að kaupum að HS-Orku hlutnum, hljóti náð fyrir augum Samkeppniseftirlitsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is