Laugardagur 22.08.2009 - 06:41 - Ummæli ()

Félagsmálaráðherra vill afskrifa hluta lána en með sanngirni – Fjármálaráðherra efins

arni-pall.jpgÁrni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir að afskrifa þurfi skuldir til að leiðrétta það misræmi sem hafi orðið í hruninu, þegar skuldir hækkuðu en eignaverð lækkaði. Það sé verkefni núverandi ríkisstjórnar að leiðrétta það misræmi sem skapaðist milli skulda og virði eigna í bankahruninu.

„Það er að sjálfsögðu rétt að afskrifa skuldir sem eru umfram greiðslugetu og veðrými eigna. Það varð mikið hrun á eignavirði og veruleg hækkun skulda á sama tíma. Skuldir í samfélaginu eru langt umfram eignir og það er engum til góðs að viðhalda þeirri stöðu. Það dregur úr getu efnahagslífsins til að skapa verðmæti á ný,“ segir Árni Páll við Fréttablaðið í dag.

„Ég hef nú verið heldur að mæla varnaðarorð í þeim efnum [um almennar niðurfærslur skulda],“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra við blaðið. „Ég held að þær aðgerðir sem við ráðumst í við okkar erfiðu aðstæður þurfi að vera mjög hnitmiðaðar og markvissar og aðstoða þá sem mest þurfa á að halda. Og þær þurfa að vera viðráðanlegar miðað við stöðu ríkissjóðs, Íbúðalánasjóðs, lífeyrissjóðanna og fleiri slíkra aðila.“

Gæta þarf sanngirnis

Spurður hver borgi fyrir skuldaleiðréttingu segir Árni: „Við verðum að horfast í augu við það að þetta eru að miklu leyti tapaðar kröfur. Það á að vera svigrúm í bankakerfinu til að takast á við tapið. Þegar lánin voru færð milli gömlu og nýju bankanna var gert ráð fyrir afskriftum.“

Spurður hversu mikil skuldsetning heimila megi verða segir hann það tæknilega útfærslu að finna sanngjarna lausn á því. Tvennt muni ráða: greiðslugeta og veðrými. „Við þurfum líka að gæta sanngirni gagnvart þeim sem ekki stofnuðu til skulda og getum ekki gert þeim það að borga niður eignir fyrir þá sem hafa full ráð á að borga.“

Spurður um hugmyndir stjórnarliða um flatan niðurskurð allra skulda segir Árni Páll að stefna stjórnarinnar sé alveg skýr: „Flöt niðurfelling er ekki inni í myndinni.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is