Magma biður um vildarkjör hjá OR. 70% kaupverðs verði lánað með veði í hlutabréfunum
Tilboð Magma Energy í hlut Orkuveitunnar í HS Orku gerir ráð fyrir að Orkuveitan láni Magma fyrir 70% af kaupverðinu. Lánið yrði tæplega 9 milljarða kúlulán í dollurum til sjö ára, með veði í bréfunum sjálfum.
Frá þessu er sagt í Fréttablaðinu í dag.
Fram kemur í blaðinu að í tilboðinu er gert ráð fyrir að lánið beri 1,5% vexti og að það verði greitt til baka í einni greiðslu að sjö árum liðnum.
Tilboðið er í 16,6% hlut Orkuveitunnar, sem og 15,4% hlut Hafnarfjarðar, sem dómstólar hafa úrskurðað að Orkuveitan verði að kaupa, jafnvel þótt Samkeppniseftirlitið hafi komist að þeirri niðurstöðu að Orkuveitan megi ekki eiga svo stóran hlut í HS Orku.
Samkvæmt Fréttablaðinu hljóðar heildartilboðið í þennan 32% hlut upp á um 12,3 milljarða króna. Þar af yrðu 3,7 milljarðar staðgreiddir. Orkuveitan myndi síðan lána fyrir afganginum, ríflega 8,6 milljörðum, í dollurum á gengi dagsins í dag. Öll gengisáhætta yrði Orkuveitunnar, en lánið yrði auk þess að einhverju leyti bundið álverði.
Fram kemur að Magma stefnir einnig að því að kaupa hlut Reykjanesbæjar í HS Orku fyrir 2,5 milljarða. Verði af kaupunum munu Magma og samstarfsaðilinn Geysir Green Energy eiga meirihluta í félaginu.
Í annari frétt í blaðinu um viðskiptin við Magma kemur að fyrirtækið hefur ekki náð jafn hagstæðum samningum í Bandaríkjunum og það reynir að ná hér. Blaðið bendir á að Reykjanesbær framseldi réttinn til HS Orku fyrir 30 milljónir á ári í 65 ár, með möguleika á framlengingu um önnur 65 ár. Verði af kaupum Magma mun félagið því þurfa að greiða bænum 30 milljóna auðlindagjald á ári.
Síðan segir Fréttablaðið að í ljós hafi komið að Magma hafi gert tvo samninga í Oregon og Nevada í Bandaríkjunum sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar telji sambærilega þessum samningi. Þeir séu einungis til tíu ára með möguleika á tíu ára framlengingu. Fyrstu tíu árin þurfi að greiða auðlindagjald sem nemur 1,75% af heildartekjum af raforkusölu og eftir tíu ár 3,5%. Hefði Reykjanesbær náð sams konar samningi við HS Orku fengi bærinn 190 milljónir í auðlindagjald í stað 30.
Fréttablaðið hefur eftir Indriða H. Þorlákssyni aðstoðarmanni fjármálaráðherra af þessu tilefni: „Þetta er óneitanlega eitt af því sem er umhugsunarefni – hvort aðgangurinn að auðlindinni sé ekki býsna ódýr í þessum samningum sem hér gilda, í samanburði við það sem maður sér þarna úti.“ Hann segir óheppilegt að hagnaður af auðlindum Íslendinga renni úr landi án þess að við fáum sanngjarnan skerf.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is