Enn stefnt að því að reisa 14 milljarða hótel við hlið tónlistarhúss við höfnina
Áform um að reisa hótel við hlið tónlistar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn hafa ekki verið lögð til hliðar þrátt fyrir efnahagshrun á Íslandi. Þannig hyggst Situs, systurfélag Portusar, leita að áhugasömum erlendum fjárfestum, með reynslu af hótelrekstri, til að bera kostnaðinn vegna byggingar og reksturs slíks mannvirkis. Pétur J. Eiríkisson, stjórnarformaður Portusar, staðfestir þetta í frétt Morgunblaðsins í dag.
Í fréttinni kemur fram að Situs áætli að selja lóðina við hlið tónlistarhússins undir hótelið og vonist eftir að fá 1,5 til 3,5 milljarða króna fyrir lóðina. Hvorki Situs né Portus muni bera fjárhagslegan kostnað vegna byggingar eða reksturs hótelsins. Þá segir að á teikniborðinu séu hugmyndir um að reisa 250-450 herbergja hótel. Áætlaður kostnaður vegna byggingar hótelsins er 12-14 milljarðar krónaÍ upphaflegum áætlunum var gert ráð fyrir að 100 lúxusíbúðir yrðu í sömu byggingu en fallið hefur verið frá hugmyndum um slíkt. „Það er nóg af tómum íbúðum í Reykjavík,“ segir Pétur við Morgunblaðið.
Samkvæmt síðustu áætlunum er stefnt að því að taka tónlistar- og ráðstefnuhúsið í notkun árið 2011. Kostnaður við það verður ekki undir 25 milljörðum króna. Útlit er fyrir að hótelinu muni seinka eitthvað og er mjög ólíklegt að það opni á sama tíma.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is