Miðvikudagur 02.09.2009 - 07:14 - Ummæli ()

Efnahagsbrotadeild rannsakar styrki opinberra fyrirtækja til stjórnmálaflokkanna

kosningar2009c.jpgNú eru til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra styrkveitingar fyrirtækja í opinberri eigu til stjórnmálaflokka fyrir kosningarnar 2007.
Fréttablaðið greinir frá því að rannsóknin snúist um hugsanlegt lögbrot flokkanna en ekki fyrirtækjanna, en brotin gætu varðar sektum, og alvarleg brot gegn lögum allt að sex árum, segir í blaðinu.

Sjálfstæðisflokkurinn þáði styrki frá þremur fyrirtækjum í opinberri eigu: Neyðarlínunni, Orkubúi Vestfjarða og Íslandspósti.

Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og Vinstrihreyfingin – grænt framboð þáðu einnig framlög frá Íslandspósti.
Flokkarnir sögðust, eftir að Ríkisendurskoðun birti þessar upplýsingar, myndu endurgreiða styrkina.

Í lögum sem tóku gildi í ársbyrjun 2007 kemur fram að bannað er að þiggja styrki frá fyrirtækjum sem eru að meirihluta í eigu eða undir stjórn ríkis eða sveitarfélaga.

Efnahagsbrotadeildin hafði einnig hug á því í vor að rannsaka hugsanleg tengsl þrjátíu milljóna styrks FL Group til Sjálfstæðisflokksins og þess sem síðar gerðist í REI-málinu. Þá stóð til að skoða hugsanleg tengsl 25 milljóna styrks Landsbankans til sama flokks í tengslum við stofnun Landsvirkjun Power.

Þá vildi efnahagsbrotadeildin taka til skoðunar fríðindi sem kjörnir fulltrúar nutu, þá sérstaklega fræga laxveiðiferð nokkurra kjörinna fulltrúa í boði Hauks Leóssonar.

Ríkissaksóknari staðfestir að ekki hafi verið taldar nægilegar vísbendingar til formlegrar rannsóknar á þessum málum.

Þar hefði þurft að sýna fram á að styrkir og fyrirgreiðslur hefðu verið veittar til að hafa áhrif á afgreiðslu stjórnvalds í málum tengdum fyrirtækjunum, en erfitt væri að sanna það.
Saksóknari efnahagsbrota, Helgi Magnús Gunnarsson, segir að aðrir styrkir en frá opinberum fyrirtækjum verði ekki skoðaðir frekar nema nýjar upplýsingar berist embættinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is