Jónas og Tindur notuðu eldvarnaverkefni sem yfirskin við amfetamínframleiðslu
Í gærmorgun hófst aðalmeðferð í máli tveggja manna sem ákærðir eru fyrir að hafa ætlað að framleiða hér amfetamín í stórum stíl og selja það. Þá er annar mannanna ákærður fyrir vörslu fíkniefna.
Í fréttum RÚV í gærkvöldi kom fram að mennirnir eru báðir á reynslulausn.
Það var í október síðastliðnum sem lögregla fann milliefni sem dygði til framleiðslu 350 kílóa á afmetamíni. Efnið fannst í háþróaðri verksmiðju í Hafnarfirði.
Mennirnir tveir neituðu fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær að hafa ætlað að framleiða amfetamín úr efninu, efnið hafi átt að selja á svörtum markaði.
Við húsleit sem var gerð í október í fyrra fundust rúmlega 38 kíló af milliefni. Það hefði dugað til framleiðslu að minnsta kosti 353 kílóa af amfetamíni.
Sakborningarnir, Jónas Ingi Ragnarsson og Tindur Jónsson, eru báðir á reynslulausn. Þeir neituðu báðir við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjaness í júlí að hafa ætlað að framleiða amfetamín úr efninu, en játuðu að hafa framleitt efnið.
Jónas Ingi Ragnarsson, 37 ára, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi árið 2005 fyrir aðild að svokölluðu líkfundamáli á Neskaupstað. Hann afplánaði tvo þriðju refsingarinnar, en hefur síðan verið á reynslulausn
Tindur, sem er 22 ára, var dæmdur í sex ára fangelsi árið 2006 fyrir tilraun til manndráps, svo og fjórar aðrar líkamsárásir. Hann afplánaði vegna ungs aldurs aðeins helming dómsins, en var eftir það á reynslulausn.
Eiturlyfjaverksmiðjan er sú langstærsta sem fundist hefur hér á landi og með háþróaðri verksmiðjum sem fundist hafa í Evrópu og Bandaríkjunum. Þar hefði verið hægt að framleiða bæði amfetamín og e-töflur.
Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að Jónas Ingi pantaði hráefni sem nota má við framleiðslu amfetamíns undir því yfirskini að það væri fyrir þróun eldvarnaefnis, sem hann og Tindur Jónsson ynnu saman að.
Þeir Jónas Ingi og Tindur neita að hafa ætlað að framleiða fíkniefni.

Við skýrslutökuna í gær kom fram að Jónas Ingi hefði verið þjónustuaðili fyrir menn í „þessum iðnaði“, eins og lögmaður hans komst að orði, hann hafi útvegað löglegt hráefni og búnað til fíkniefnaframleiðslu, svo sem mjólkursykur, vogir, lampa og fleira.
Á vordögum 2008 hafi aðili, sem Jónas vill ekki nefna, beðið hann um að útvega sér efnið P-2-P, sem er eftirlitsskylt. Jónas taldi að erfitt yrði að flytja það inn til landsins og ákvað að búa það til sjálfur og selja viðkomandi aðila.
Hann segist hafa talið að um brot á reglugerð hafi verið að ræða en ekki brot á lögum. Hann sagðist þó hafa vitað að hægt væri að nota P-2-P til framleiðslu á amfetamíni.
Tindur hefur lokið einu ári í efnafræði við Háskóla Íslands og fór upphaflega að vinna fyrir Jónas Inga til að aðstoða hann við að framleiða eldvarnaefni.
Jónas Ingi sagði fyrir rétti að þáttur Tinds í málinu hefði verið „takmarkaður“. Ekki hafi þó liðið langur tími þar til hann hefði beðið Tind um aðstoð við samsetningu tækja sem hann notaði við framleiðslu á P-2-P. Hann hefði ekki upplýst Tind um hvaða efni hann hygðist framleiða, en Tindur hefði fljótlega áttað sig á um hvaða efni væri að ræða.
Saksóknari lagði fram uppskrift að símtali milli Jónasar Inga og Tinds, sem lögregla hleraði, þar sem þeir töluðu um „eldvarnakover“.
Tindur útskýrði það með því að þeir félagar hefðu viljað lágmarka áhættuna. Jónas Ingi hefði því notað eldvarnaverkefnið sem yfirskin þegar hann pantaði P-2-NP til að vekja ekki grunsemdir.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is