Afkomutenging lána gæti hugsanlega verið lausn á greiðsluvanda heimilanna
Í Viðskiptablaði Morgunblaðsins er fjallað um aðgerðir til aðstoðar heimilunum en þær aðgerðir sem boðið er upp á nú þegar eru að margra mati ófullnægjandi.
Ein þeirra hugmynda sem upp hefur komið vegna mikilla skulda heimilanna er að afkomutengja lán, en Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor við Háskóla
Íslands, greindi nýlega frá þessari hugmynd í grein í Morgunblaðinu.
Hugmyndin gengur út á að ef laun skuldara haldi ekki í við verðbólguna, þá leiðréttist greiðslubyrðin og hugsanlega eftirstöðvarnar einnig.
Það sem skuldarinn greiðir umfram það sem hann hefði greitt ef lán hans tækju mið af breytingum á launum hans fengi hann endurgreitt. Sama gæti og átt við um eftirstöðvar lána. Þeir fengju því aðstoð sem á þurfa að halda.
Upphafsdagsetning aðgerða af þessu tagi mun skipta miklu máli, en líklegt er að hugmyndir um niðurfellingu skulda geti verið skammgóður vermir.
Þá gæti afkomutenging lána gæti hugsanlega verið millistigið þarna á milli.
Nýlega skipaði ríkisstjórnin nefnd sem hefur það verkefni að fara yfir þau úrræði sem fólki í greiðsluerfiðleikum er boðið upp á og koma með hugmyndir um breytingar ef þurfa þykir. Nefndin á að vinna hratt og skila niðurstöðum sínum ekki eftir um það bil mánuð.
Trúlegt þykir að skipan nefndarinnar staðfesti að stjórnvöld telji þörf á frekari aðgerðum.
„Samkvæmt hugmyndum Þórólfs er miðað við að ákveðinn hluti höfuðstóls húsnæðisskulda verði gerður að afkomutengdu láni. Spurningin er hins vegar hvort ekki sé hægt að ganga alla leið og afkomutengja endurgreiðslur lána að fullu. Til greina kæmi einnig að afkomutengja höfuðstólinn. Hafa ber þó í huga að með því að eiga þannig við eftirstöðvarnar er verið að létta greiðslubyrðina síðar á lánstímanum án þess að fyrir liggi að þörf sé á því. Þess vegna væri auðvitað einfaldara ef ekkert yrði átt við eftirstöðvarnar, en með því að gera það er verið að ganga til móts við hugmyndir um niðurfellingu skulda, eða leiðréttingu þeirra eins og það er orðað,“ segir í greininni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is