Danskir læknar vara við genaprófum sem DeCode býður upp á í Danmörku – segja þau beinlínis hættuleg
Danskir læknar hafa nú varað við íslensku genaprófi, sem meðal annars kortleggur erfðamassa og gerir kleift að athuga hvort fólki sé hætt við að fá 42 tegundir af sjúkdómum. Frá þessu segir á vefnum fpn.dk.
„Sendu munnvatnssýni og 985 dali til Íslands og mánuði síðar færðu svar um hvort þú ert í áhættuhópi varðandi ýmsa sjúkdóma eins og alzheimer og brjóstakrabbamein svo eitthvað sé nefnt. Eða hvort þú ert í áhættuhópi varðandi skerta sjón, alkóhólisma eða óróa í beinum.“
Þannig hljóðar tilboð frá Decode Genetics, leiðandi fyrirtæki í heiminum í erfðarannsóknum, segir á vefnum.
Það eru hins vegar ekki allir í loftinu yfir þessu tilboði. John Brodersen, sem er starfandi læknir og lektor við Institut for Folkesundhedsvidenskab, Afdeling for Almen Medicin, segir að tilboð af þessum toga fyrir einstaklinga ættu að vera bönnuð í Danmörku.
„Fólk hefur ekkert gagn af þessu prófi. Það getur ekki komið í veg fyrir sjúkdómana og mörg prófanna eru langt í frá örugg, þannig að frá vísindalegu sjónarmiði er ástæða til að vara við þessu,“ segir Brodersen.
Lotte Hvas, sem er hátt sett innan Det Etiske Råd, segir venjulegt fólk ekki ráða við að fá upplýsingar um hættuna á að það fái krabbamein, sykursýki eða aðra sjúkdóma. Það skapi eingöngu óþarfa hræðslu, því það sé ímyndun að hægt sé að finna allan sannleikann í erfðaprófi. Jafnvel þó í ljós komi að hætta sé á sjúkdómi sé ekkert víst að fólk þrói með sér viðkomandi sjúkdóm,“ segir Lotte og varar Dani við að óska eftir prófinu frá Íslandi.
Hún óttast að danska heilbrigðiskerfið þyldi ekki álagið ef Danir tækju unnvörpum þetta próf, þar sem danskar heilbrigðisstofnanir yrðu yfirfullar af áhyggjufullu fólki sem héldi sig þjást af sjö mismunandi sjúkdómum, byggðum á niðurstöðum DeCode.
Á Íslandi hafa um það bil 100.000 manns af 320.000 íbúum tilkynnt þátttöku í prófinu þar sem erfðaefni eru rannsökuð og haldið til haga með heilbrigðisskýrslum sjúkrahúsa og lækna viðkomandi einstaklinga, segir ennfremur í fréttinni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is