Ögmundur um OECD-skýrslu: Slær öll met í yfirlæti. Þröng pólitísk sýn. Hver borgar þetta?
Ný skýrsla OECD um íslensk efnahagsmál slær flest met með ‘yfirlætisfullum aðfinnslum og umvöndunum’ í garð Íslendinga. Eins og fyrri skýrslur frá stofnuninni ber hún vott um þrönga pólitíska sýn, enda unnin af einstaklingum sem aðhyllast hægri sinnaða markaðshyggju.
Þetta segir Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra í pistli á vefsíðu sinni í dag.
Hann segist að sinni ekki ætla að ræða vangaveltur í skýrslunni um aðild Íslands að Evrópusambandinu enda séu þær ‘fráleitar fabúleringar.’
Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra gagnrýnir einnig skýrslu OECD og segir umfjöllun hennar um ESB vera íhlutun í íslensk innanríkismál sem ríkisstjórnin ætti að mótmæla.
Ögmundur vitnar í umfjöllun OECD um hrunið og segir: ‘Nú er býsnast yfir því að ekki hafi verið nóg eftirlit með fjármálamarkaðnum. Í skýrslunni 2006 var það hins vegar talinn sérstakur kostur hve öllum hömlum hafi verið aflétt og hve frábærlega hafi tekist til við einkavæðinguna! Á Íslandi hafi hún verið framkvæmd „á aðdáunarverðan hátt“ og um að gera að halda áfram á sömu braut.’
Heilbrigðisráðherra ræðir síðan sérstaklega það sem sagt er um heilbrigðismálin í skýrslu OECD. ‘Þar lýsir OECD því yfir að hægt sé að skera niður um fimmtung án þess að skerða þjónustu! Við þurfum ekki annað en líta til Spánar til að finna fordæmi, segja skýrsluhöfundar. Það sem gera þurfi sé að opna kerfið betur fyrir einkavæðingu og taka upp notendagjöld í ríkari mæli. Á mannamáli þýðir þetta að hækka eigi sjúklingaskatta,’ segir Ögmundur.
Síðan skrifar hann: ‘Prófessor í hagfræði sagði í Spegli RÚV í kvöld að almennt væri andstaða gegn hugmyndum OECD innan heilbrigðiskerfisins. Þetta þótti mér afvegaleiðandi yfirlýsing hjá Þórólfi Matthíassyni, prófessor við Háskóla Íslands. Þetta er misvísandi að því leyti að andstaðan er ekki bundin við heilbrigðiskerfið heldur tekur hún til alls þjóðfélagsins. Almennt vilja Íslendingar ekki sjá þessa þá stefnu sem OECD hvetur til. Ég spyr eins og fleiri, og mun spyrja við ríkisstjórnarborð, hver borgar fyrir skýrslugerð af þessu tagi?’
.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is