Föstudagur 04.09.2009 - 11:06 - Ummæli ()

Ekkert álver á Bakka þrátt fyrir vilja Alcoa? Ríkisstjórnin lætur kanna aðra möguleika

bakki-husavik.jpgEkki er víst að Húsvíkingar fái álverið á Bakka sem lengi hefur verið talað um. Stjórnarflokkarnir, Samfylkingin og Vinstri græn, vilja kanna möguleikana á því að nýta orkuna á Þeistareykjum í önnur verkefni.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Blaðið segir að viljayfirlýsing stjórnvalda, Alcoa og Norðurþings vegna rannsókna fyrir hugsanlegt álver á Bakka við Húsavík renni út 1. október. Möguleikarnir á annarri nýtingu hafi verið ræddir á óformlegum fundum, m.a. í iðnaðarráðuneytinu. Haft er eftir Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra að fundað verði frekar um málið á næstu vikum með sveitarstjórnarmönnum á Norðurlandi.

Fram kemur í Morgunblaðinu að forsvarsmenn Alcoa vilja endurnýja viljayfirlýsinguna og vinna áfram að hagkvæmniathugun vegna mögulegra framkvæmda. Haft er eftir Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóri Alcoa á Íslandi, að Alcoa hafi enn áhuga á því að reisa álver á Bakka í samstarfi við þá sem að viljayfirlýsingunni standa.

Morgunblaðið segir að Vinstri græn vilji hins vegar frekar kanna aðra möguleika en álver.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is