Aðkoma AGS nauðsynleg Íslendingum – stjórnvöld sjálf veikt stöðu landsins með að fylgja ekki áætlunum
Josephs Stiglitz, höfundur bóka um efnahagsmál, heldur fyrirlestur á mánudaginn um Ísland og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor er hrifinn af bókum Stiglitz og segir í DV í dag að þrátt fyrir að bækur Stiglitz séu fróðlegar og læsilegar séu þó ýmis sjónarmið hans umdeild, einkum gagnrýni hans á Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Staðreyndin sé að íslensk stjórnvöld hafi reynst ófær um að leysa efnahagsvandann, sem þau höfðu upp á eigin spýtur kallað yfir landið og Þorvaldur segir það hafa veikt stöðu Íslands að stjórnvöld hafi ekki fylgt áætlun sjóðsins að fullu. Tafir af hálfu stjórnvalda sjálfra hafi valdið mestu um að endurskoðun áætlunarinnar, sem átti að fara fram í febrúar, hefur ekki enn farið fram.
Sjóðurinn hafi sýnt Íslandi óvenjulega þolinmæði með því að fallast á frestun á gagngerri stefnubreytingu í ríkisfjármálum í eitt ár, en stjórnvöld virðist hafa misskilið frestinn þannig, að þau hefðu að sama skapi meiri tíma til umhugsunar.
Joseph Stiglitz, sem hlaut nóbelsverðlaun í hagfræði árið 2001, er prófessor við Columbiaháskóla í New York. Hann var árum saman einn helsti efnahagsráðgjafi Bills Clintons forseta Bandaríkjanna og síðar aðalhagfræðingur Alþjóðabankans.
Á mánudaginn verður hann sem fyrr segir með fyrirlestur um Ísland og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, en verður einnig gestur í Silfri Eglis á morgun.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is