Atvinnuleysisbætur 16 milljarðar króna það sem af er árinu – ekkert bendir til minna atvinnuleysis í vetur
Það sem af er þessu ári hafa rúmlega 16 milljarðar verið greiddir í atvinnuleysisbætur. Atvinnuleysistryggingasjóður mun að óbreyttu tæmast á næsta ári, segir á vísi.is.
Um síðustu mánaðamót námu greiddar atvinnuleysisbætur tæpum tveimur milljörðum króna, en heildargreiðslur hækkuðu um tæpar 60 milljónir milli mánaða.
Í fjárlögum fyrir árið 2009 er gert ráð fyrir rúmum sautján og hálfum milljarði króna í atvinnuleysisbætur.
Tryggingagjöld og iðgjaldagreiðslur fyrirtækja voru hækkaðar í júlí síðastliðnum til að mæta vaxandi kostnaði vegna atvinnuleysisbóta.
Það sem af er árinu hafa verið greiddar út rúmir sextán milljarðar króna í atvinnuleysisbætur og ljóst að atvinnuleysistryggingasjóður muni ekki hafa
bolmagn til að standa undir áframhaldandi greiðslum á næsta ári, nema til
komi auka fjármagn frá ríkinu eða frekari hækkun skatta.
Í júli síðastliðnum mældist atvinnuleysi 8%, en ekki liggja fyrir tölur um ágústmánuð. Fátt bendir til þess að atvinnuleysi muni dragast saman í vetur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is