Óttast landflótta hjúkrunarfræðinga vegna niðurskurðar í heilbrigðisstétt
Í gær var tilkynnt um mikinn niðurskurð á Landspítalanum, en Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður félags hjúkrunarfræðinga, sagðist í hádegisfréttum RÚV óttast landflótta vegna niðurskurðarins og vera óhress með hvernig staðið væri að honum.
Í niðurskurðinum felst meðal annars að þremur skurðstofum verður lokað tímabundið, tímabundnir samningar verða ekki endurnýjaðir, ekki verður ráðið í stöður þeirra sem hætta og yfirvinna verður aflögð.
Elsa segist óttast landflótta úr stéttinni, því niðurskurðurinn komi alls staðar fram. Því hafi félagsmenn ekki val um annað en að leita út fyrir landsteinana. Hún segist hafa kallað eftir því við heilbrigðisráðuneytið að kerfið yrði tekið til gagngerrar endurskoðunar og skoðað hvað ætti að gera og hvað ekki.
Það sé rangt að aðgerðir skuli einungis ganga út á að draga aðeins úr öllu en gera ekkert vel. Hún hefði viljað sjá stjórnvöld nálagast málið á annan hátt.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is