Sunnudagur 06.09.2009 - 08:06 - Ummæli ()

Góður tími til að fjárfesta á Íslandi: Vonast til að fleiri útlendingar kaupi íslenskar eignir

gylfi-magnusson.jpgMargir erlendir fjárfestar þreifa fyrir sér um fjárfestingu hér á landi, að sögn Gylfa Magnússonar, viðskiptaráðherra, í Morgunblaðinu í dag. Á hann von á að fleiri fylgi í kjölfar Norðmanna sem hyggjast leggja tugi milljarða í íslenska endurreisn, einsog fram kom í Morgunblaðinu í gær.

Þar var bent á áhuga norskra fjárfesta á að setja 20 milljarða íslenskra króna í fjárfestingasjóð sem yrði samvinnuverkefni þeirra og lífeyrissjóðanna. Gylfi segir þetta góðar fréttir.

„Það verður mikil þörf á fjármagni í íslenskt atvinnulíf á næstu árum. Ég á von á að ýmsir utan Íslands sjái sér hag í að fjárfesta hér enda skapar svona umrót ekki bara vandamál, heldur líka tækifæri. Ég býst því við að fleiri fylgi í kjölfarið,“ segir Gylfi við Morgunblaðið. Hann segist vita að margir þreifi fyrir sér í þessum efnum en hins vegar sé ekkert fast í hendi. „Mér þætti þó skrýtið ef ekkert kæmi út úr því. Íslenskar eignir eru afskaplega ódýrar núna fyrir þá sem eru utan landsteinanna með erlent fé, bæði vegna þess að verð á þeim hefur lækkað í krónum og svo hefur krónan lækkað. Þannig að þetta er eiginlega einstætt tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að fjárfesta hér.“

Íslendingar eigi áfram megnið af atvinnulífinu

Í þessu samhengi spyr blaðið hvort ekki sé hætta á að of mikið af íslenskum eignum verði selt og svarar:

„Jú, við þurfum líka að hafa það í huga, en auðvitað munu íslenskir aðilar áfram eiga megnið af íslensku atvinnulífi, og lífeyrissjóðir munu væntanlega leika þar lykilhlutverk,“ segir Gylfi.

Morgunblaðið hefur einnig eftir Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, í þessu skyni. „Það væri óskandi að þeir myndu fjárfesta á Íslandi því við þurfum á því að halda að einhverjir komi með peninga til landsins.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is