Sunnudagur 06.09.2009 - 07:21 - Ummæli ()

Steingrímur J.: Upplausn á Íslandi ef Bretar og Hollendingar hafna Icesave

steingrimur-j-silfur.jpgSteingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að hafni Bretar og Hollendingar nýsamþykktum lögum um Icesave vegna þeirra fyrirvara sem Alþingi setti inn í lögin um ríkisábyrgð sé komin upp ný og grafalvarleg staða og „málið í algjörri upplausn“.

„Ég held að þá væri komin upp staða sem við myndum ekki ráða við án einhvers konar utanaðkomandi stuðnings,“ segir Steingrímur í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið í dag.

Morgunblaðið segist hafa upplýsingar um að misjafnar áherslur séu í mismunandi ráðuneytum í hvoru landi um sig. Þannig muni vera meiri harka í garð Íslendinga í breska fjármálaráðuneytinu en forsætisráðuneytinu og hjá Hollendingum mun fjármálaráðuneytið vera Íslendingum hliðhollara en forsætisráðuneytið.

Steingrímur segir í viðtalinu við Morgunblaðið að stjórnvöld hafi hugleitt viðbrögð því ef svo færi að Bretar og Hollengar hafni fyrirvörum Alþingis á Icesave-samningum, þó ekkert hafi verið ákveðið af hálfu stjórnvalda.

„Já og nei. Ef þeir hafna fyrirvörunum alveg og málið verður í algjörri upplausn, þá höfum við auðvitað velt því fyrir okkur hvað væri til ráða. Ég held að þá væri komin upp staða sem við myndum ekki ráða við, án einhvers konar utanaðkomandi stuðnings. Ég ímynda mér að við slíkar kringumstæður þyrftum við að leita liðsinnis einhverra aðila til að aðstoða okkur annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar við að leysa deiluna,“ segir Steingrímur og heldur áfram:

„Ég hef auðvitað líka velt fyrir mér hvaða aðstæður kæmu þá upp í okkar efnahagsmálum og okkar aðstæðum sem þjóðar. Þá yrðum við að geta gripið til ákveðinna ráðstafana, það er alveg ljóst. Það yrði mikil upplausn í okkar málum, ef allt prógrammið sem unnið hefur verið eftir, samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, lánin frá hinum Norðurlöndunum og fleirum til að styrkja gjaldeyrisforðann, sigldi einfaldlega í strand. Það gæti einnig haft slæm áhrif á endurreisn bankakerfisins og sömuleiðis á samskipti okkar við erlenda kröfuhafa, gengi krónunnar og lánshæfismat þjóðarinnar og raunar hvað eina. Það gætu þannig komið upp mjög alvarlegar aðstæður, sem menn yrðu að bregðast við, en í lengstu lög vona ég vitanlega að ekki komi til slíks.

Töf á afgreiðslu Icesave bæði jákvæð og neikvæð

„Það er jákvætt að umræðan í erlendum fjölmiðlum hefur lagst meira með okkur Íslendingum og okkar málstað á lokaspretti Icesave-málsins og ég held að það sé meðal annars afraksturinn af því að umheimurinn hefur upplifað og fylgst með því hversu stórt þetta mál er fyrir íslensku þjóðina.

Það má kannski segja að það sé ávinningurinn af því langa og erfiða ferli sem málið fór í, í meðförum Alþingis. Þannig komst það smátt og smátt til skila hversu stórt og erfitt þetta mál er fyrir Ísland og það er gott. Að hinu leytinu til hefur þetta langa afgreiðsluferli í þinginu kostað okkur tíma. Við erum fjórum til sex vikum á eftir með ýmislegt, sem er til baga,“ segir Steingrímur í „drottningarviðtali“ Morgunblaðsins í dag.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is