Mánudagur 07.09.2009 - 19:56 - Ummæli ()

Tillaga hagfræðings BSRB um lánavandann: 25% leiðrétting höfuðstóls. 7 milljóna hámark

einar-arnason.jpgEinar Árnason hagfræðingur BSRB hefur lagt í púkkið enn eina lausnina á skuldavanda heimilanna. Tillaga Einars, sem hann kynnti í viðtali í Speglinum á RÚV, gengur út á að færa niður höfuðstól lána um 25% vegna forsendubrests en að leiðréttingin nemi að hámarki sjö milljónum króna.

Ólíkt öðrum almennum niðurfellingaleiðum sem nefndar hafa verið, svo sem 20% niðurfellingarleið Framsóknarflokksins, mun þessi aðferð ekki hjálpa óhóflega þeim sem skuldi mjög háar fjárhæðir á kostnað þeirra sem skuldi minna.

„Sá sem skuldar hundrað milljónir og á 200 milljóna króna hús fengi ekki 25 milljóna króna niðurfelling, heldur bara sjö.“ Einar viðurkennir að forsendubresturinn sé líka til staðar gagnvart þeim sem hafi tekið stærri lánin, en það að hafa á þessu þak sé „tilraun til að ná sáttum í þjóðfélaginu.“

Einar segist ekki treysta á þær lausnir sem séu væntanlegar frá nefnd þriggja ráðuneyta og telur stjórnvöld ekki hafa áttað sig á því að það þurfi þverpólitíska samstöðu til að leysa málið en ekki stjórnarfrumvarp.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is